Fara í efni  

Bæjarstjórn

1139. fundur 17. janúar 2012 kl. 17:00 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Sigurðsson aðalmaður
  • Guðmundur Páll Jónsson aðalmaður
  • Hrönn Ríkharðsdóttir aðalmaður
  • Þröstur Þór Ólafsson aðalmaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Dagný Jónsdóttir aðalmaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Einar Benediktsson aðalmaður
  • Árni Múli Jónasson bæjarstjóri
  • Jón Pálmi Pálsson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Jón Pálmi Pálsson bæjarritari
Dagskrá

1.

1.1.Fjárhagsáætlun 2012 - Skipulags- og umhverfisstofa

1110098

2.Fjölskylduráð - 80

1112009

Fundur fjölskylduráðs frá 11. desember 2011.

Lögð fram.

2.1.Brekkubæjarskóli-starfsmannamál desember 2011

1112042

3.Fjölskylduráð - 81

1112018

Fundur fjölskylduráðs frá 20. desember 2011.

Lögð fram.

3.1.Ályktun gegn niðurskurði í tónlistarskólum

1112048

3.2.Félag leikskólakennara - spurningar

1112051

3.3.Fjöliðjan - Ósk um kaup á pökkunarbúnaði

1109135

3.4.Fjárhagsáætlun 2012

1109132

3.5.Húsnæðismál - áfrýjun

1112045

3.6.Fjárhagsaðstoð - áfrýjun 2011

1111096

3.7.Húsnæðismál - áfrýjun

1112105

3.8.Húsnæðismál-áfrýjun

1112087

3.9.Bakvaktir

1006157

4.Fjölskylduráð - 82

1201004

Fundargerð fjölskylduráðs frá 11. janúar 2012.

Lögð fram.

4.1.fjárhagsaðstoð-áfrýjun

1201099

4.2.Mótun skólastefnu

1201103

4.3.Gjaldskrár 2012

1112160

4.4.Ungmennafélagið Skipaskagi - aðstaða

1112175

4.5.UMFÍ - Gisting íþróttahópa

1201069

5.Framkvæmdaráð - 69

1112008

Fundargerð framkvæmdaráðs frá 15. desember 2011.

Lögð fram.

5.1.Fjárhagsáætlun 2012 - Framkvæmdastofa

1110097

5.2.Akraneshöll - hitalampar

1102075

5.3.Þjóðvegur 51 - vetrarþjónusta

1112080

5.4.Framkvæmdastofa - skipulag

1112081

5.5.Framkvæmdastofa - rekstraryfirlit 2011

1102355

6.Framkvæmdaráð - 70

1201003

Fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. janúar 2012.

Lögð fram.

6.1.Fjárhagsáætlun 2012 - Framkvæmdastofa

1110097

6.2.Akraneshöll - hitalampar

1102075

6.3.Þjóðvegur 51 - vetrarþjónusta

1112080

6.4.Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - vaktafyrirkomulag

1109022

6.5.Gjaldskrá fyrir hundahald 2012

1201044

7.Fundargerðir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur - 2011

1101190

167. fundargerð, frá 16. desember 2011.

Lögð fram.

8.Faxaflóahafnir sf - Fundargerðir 2011

1101169

93. fundur frá 9. desember 2011.

Lögð fram.

9.Fundargerðir Höfða 2011

1102004

10. fundur frá 19. desember 2011.

Lögð fram.

10.Þjónustukönnun Capacent Gallup.

1112037

Samþykkt bæjarráðs dags. 15. desember 2012, um heimild til kaupa á þjónustukönnun að upphæð kr. 333 þús. að viðbættum vsk. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að veitt verði aukafjárveiting til verksins. Fjárveitingu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.

Tillagan samþykkt 9:0.

11.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.

1101181

Bæjarráð vísaði á fundi sínum 29. desember 2011, tillögu fjármálastjóra, sem gerir ráð fyrir samanteknum breytingum sem nema 6,8 m.kr. jákvæðri niðurstöðu í samstæðu rekstrarreiknings til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Tillagan samþykkt 9:0.

12.Íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar - samkomur

1201042

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 5. janúar að leggja til við bæjarstjórn að eftirfarandi breyting verði gerð á samþykkt bæjarstjórnar 17. apríl 2007, um að notkun íþróttamannvirkja á Akranesi til almenns dansleikjahalds þar sem áfengi er haft um hönd sé bönnuð.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn eftirfarandi breytingu á reglunum: "Þó er heimilt að víkja frá þessu banni með samþykki bæjarráðs, enda sé sýnt að ekki sé mögulegt, s.s. vegna líklegrar aðsóknar, að halda dansleik eða samkomu annars staðar í sveitarfélaginu og þá liggi fyrir, að mati ráðsins, að gerðar verði fullnægjandi ráðstafanir, t.d hvað varðar, sölu og/eða dreifingu aðgangsmiða, aldurstakmark, dyravörslu og fyrirkomulag sölu og/eða veitinga áfengis, til að dansleikur eða samkoma megi fara vel fram."

Til máls tók: Bæjarstjóri.

Bæjarstjóri lagði til að tillögunni verði vísað til umfjöllunar framkvæmda- og fjölskylduráðs til nánari útfærslu.

Samþykkt 9:0.

13.Strætó bs. - útboð á akstri

1103168

Bæjarráð vísar samþykkt frá 5. janúar 2012 á verksamningi um akstur milli Akraness og Mosfellsbæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Til máls tóku:

Einar Benediktsson óskar eftir að eftirfarandi verði bókað:

"Það er ekki með nokkru móti eða góðri samvisku hægt að samþykkja þann samning er fyrir liggur um akstur strætisvagns milli Akraness og Reykjavíkur. Í útboðsgögnum fyrir verkið er tiltekið að svokallaðir millibæjarvagnar skuli notaðir í aksturinn en í þeim er gert ráð fyrir allt að 20 standandi farþegum.
Þarna er verið að fórna öryggi farþega á altari Mammons, þar sem að þetta er víst til þess gert að lækka kostnað við þjónustuna!
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu öryggi farþega er ógnað með þessum hætti, en skemmst er að minnast að vagn á leið 57 (Akranes ? Mosfellsbær) lenti utan vegar á Vesturlandsvegi fyrir nokkrum vikum, ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda ef þar hefði verið á ferð vagn með allt að 20 standandi farþegum.
Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær farþegi í strætó verður fyrir alvarlegu slysi sökum þess að að fyllsta öryggis er ekki gætt í þeim vögnum er aka hér á milli.
Af þessum sökum mun ég ekki geta samþykkt aðild Akraneskaupstaðar að þessum samning og vona svo sannarlega að aðrir bæjarfulltrúar skoði hug sinn vel áður en þeir samþykkja slíkan dauðasamning."

Einar Benediktsson

14.Gjaldskrá fyrir hundahald 2012

1201044

Bréf bæjarráðs dags. 13. janúar og framkvæmdaráðs dags. 6. janúar 2012, þar sem samþykkt framkvæmdaráðs á gjaldskrá fyrir hundahald 2012, er vísað til umfjöllunar bæjarstjórnar.

Gjaldskráin samþykkt 9:0.

15.Heiðarbraut 40, breytt deiliskipulag

1105061

Bréf bæjarráðs dags. 16. desember 2011, þar sem breytingu á deiliskipulagi vegna Heiðarbrautar 40 er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

16.Elli- og örorkulífeyrisþegar - tekjuviðmið vegna álagningar fasteignagjalda 2012

1201105

Bréf bæjarráðs dags. 13. janúar 2012, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að tillaga fjármálastjóra um hækkun á tekjuviðmiði tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega sem rétt eiga á lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts verði samþykkt.

Tillagan samþykkt 9:0.

17.Fjárhagsáætlun 2012

1109132

A - hluti
Aðalsjóður
Eignasjóður
Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf.
Gáma
Byggðasafnið í Görðum

B - hluti

Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf.
Háhiti
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Til máls tóku: Bæjarstjóri.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir þeim breytingum sem frumvarpið hefur tekið í meðförum ráða frá framlagningu þess í desember. Með áorðnum breytingum eru helstu niðurstöður frumvarpsins þessar:

A- hluti:

Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði 62,3 m.kr

Rekstrarafkoma með fjármagnsliðum 20.3 m.kr hagnaður.

Handbært fé frá rekstri. 402,8 m.kr.

Fjárfestingarhreyfingar 87,8 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar 319,8 m.kr. útgjöld.

Lækkun á handbæru fé 4,8 m.kr.

B- hluti:

Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði 13,6 m.kr halli.

Rekstrarafkoma með fjármagnsliðum 16,2 m.kr halli.

Handbært fé frá rekstri 12,4 m.kr.

Fjárfestingarhreyfingar 87,0 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar 78,0 m.kr. tekjur.

Hækkun á handbæru fé 3,4 m.kr.

Fjárhagsáætlunin með áorðnum breytingum borin upp og samþykkt 9:0.

18.FVA - Tækjakaup 2012

1201124

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita fjárhæð kr. 2.349.000 til Fjölbrautaskóla Vesturlands til eflingar rafiðnaðardeildar skólans vegna endurnýjunar tækjabúnaðar.

Tillagan samþykkt 9:0.

19.Búnaðar- og áhaldakaup 2012 - ráðstöfun fjármuna.

1112141

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir sjóði vegna endurnýjunar tækja og áhalda hjá stofnunum bæjarins. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir kr. 10.733.000 sem stofnanir kaupstaðarins geta sótt um fjárveitingu til í gegnum þá stofu sem stofnunin tilheyrir og til bæjarráðs sem annast úthlutun fjármuna.

Tillagan samþykkt 9:0.

20.Langtímaveikindi starfsmanna 2012 - ráðstöfun fjármuna

1112142

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir í fjárhagsáætlun kr. 10.450.000 vegna langtímaveikinda starfsmanna. Stofnanir kaupstaðarins geta sótt um fjárveitingu í gegnum þá stofu sem stofnunin tilheyrir og til bæjarráðs sem annast úthlutun fjármuna.

Tillagan samþykkt 9:0.

21.Verkefni í nýsköpunar-, atvinnu- og ferðamálum

1112055

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011.
Forseti gerði grein fyrir breytingu á fyrirliggjandi tillögu og er hún svohljóðandi:
"Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir fjárframlögum vegna starfa verkefnastjóra í atvinnu- og ferðamálum í átta mánuði á árinu 2012. Bæjarráði er falið að vinna nánari útfærslu hugmynda um framtíðar fyrirkomulag þessara starfa og leggja tillögur fyrir bæjarstjórn til umfjöllunar, jafnframt er atvinnumálanefnd og stjórn Akranesstofu falið að leggja fyrir bæjarstjórn greinargerðir um störf verkefnastjóra í atvinnumálum og atvinnumálanefndar vegna ársins 2011 svo og störf verkefnastjóra í ferðamálum og starfsemi upplýsingamiðstöðvar fyrir sama tímabil."

Tillagan samþykkt þannig 9:0.

22.Félagsleg úrræði 2012 - framlag

1112143

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir fjármunum vegna Endurhæfingarhússins "Hvers" að fjárhæð kr. 6.572.000, til atvinnumála fatlaðs fólks að fjárhæð kr. 2.090.000 og til Búkollu að fjárhæð kr. 1.500.000.
Fjölskyldustofu- og ráði er falið að leggja fyrir bæjarstjórn greinargerð um starfsemina á árinu 2011 og áætlanir og horfur fyrir árið 2012, þar með möguleikum á að afla verkefnunum stuðnings frá sjóðum og samstarfsaðilum sem staðið hafa að verkefnunum ásamt Akraneskaupstað. Greinargerðin liggi fyrir svo fljótt sem verða má, en eigi síðar en 1. mars 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

23.Styrkur til Stígamóta og Kvennaathvarfs 2012

1112144

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir framlag að fjárhæð kr. 200.000 til Stígamóta og kr. 200.000 til Kvennaathvarfsins vegna starfsemi þeirra á árinu 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

24.Fab Lab 2012 - framlag

1112145

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir fjárveitingu að fjárhæð kr. 9.668.000 til starfsemi Fab Lab á árinu 2012. Verkefnastjórn og forstöðumanni er falið að leggja fyrir bæjarstjórn greinargerð um starfsemina á árinu 2011, áætlanir og horfur fyrir árið 2012, þar með möguleikum á að afla verkefninu áframhaldandi stuðnings frá sjóðum og samstarfsaðilum að hugmyndasmiðjunni. Greinargerðin liggi fyrir svo fljótt sem verða má, en eigi síðar en 1. mars 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

25.Skipulagsverkefni 2012 - framlag

1112146

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa kr. 6.226.000 til verkefna vegna endurskoðunar aðal- og deiliskipulags á Akranesi. Skipulags- og umhverfisnefnd er falin nánari útfærsla verkefnanna.

Tillagan samþykkt 9:0.

26.Vinnuskóli Akraness 2012 - framlag

1112147

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir fjármunum til reksturs Vinnuskóla Akraness á árinu 2012, kr. 45.355.000. Bæjarstjórn felur rekstrarstjóra Vinnuskólans ásamt tveimur fulltrúum skipuðum af Fjölskylduráði og Framkvæmdaráði að taka reksturinn til umfjöllunar, tilgang hans og fyrirkomulag. Niðurstöður skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til umfjöllunar eigi síðar en 1. apríl 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

27.Tjaldsvæði og almenningssalerni 2012 - framlag

1112148

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa kr. 4.895.000 til reksturs tjaldsvæðis og almenningssalerna á árinu 2012. Bæjarstjórn felur stjórn Akranesstofu og verkefnastjóra að taka rekstur þessa málaflokks til skoðunar m.a. með það að markmiði að reksturinn verði boðinn út og leggja fyrir bæjarstjórn tillögur eigi síðar en 15. febrúar 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

28.Átak í atvinnumálum 2012 - framlag

1112149

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa kr. 14.525.000 til verkefna vegna atvinnuátaks fyrir atvinnulaust fólk. Bæjarstjórn felur starfsmanna- og gæðastjóra að leggja fyrir bæjarráð tillögur um nánari útfærslu í samráði við Framkvæmdastofu um ráðstöfun fjárins og verkefnaval.

Tillagan samþykkt 9:0.

29.Jólaskreytingar 2012 - framlag

1112150

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa kr. 1.728.000 til jólaljósaskreytinga og uppsetningu jólatrjáa á árinu 2012. Bæjarstjórn felur verkefnastjóra Akranesstofu og framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu að kanna með þátttöku stofnana og fyrirtækja á Akranesi við uppsetningu og rekstur jólaljósa fyrir jól/áramótin 2012/2013. Niðurstaða liggir fyrir eigi síðar en 1. október 2012. Bæjarstjórn felur verkefnastjóra Akranesstofu og framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu að kanna með þátttöku stofnana og fyrirtækja á Akranesi við uppsetningu og rekstur jólaljósa fyrir jól/áramótin 2012/2013. Niðurstaða liggir fyrir eigi síðar en 1. október 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

30.Kirkjuhvoll 2012 - framlag

1112151

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa kr. 6.165.000 til reksturs Kirkjuhvols á árinu 2012. Bæjarstjórn felur stjórn Akranesstofu að taka reksturinn til skoðunar, tilgang hans og fyrirkomulag. Niðurstöður skulu lagðar fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. apríl 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

31.Hátíðahöld 2012 - framlag

1112152

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa kr. 15.138.000 til hátíðarhalda, viðburða og afmælis Akraneskaupstaðar á árinu 2012. Stjórn Akranesstofu og starfshópi um afmælishald kaupstaðarins er falið að leggja tillögur fyrir bæjarráð um ráðstöfun fjárins eigi síðar en 1. febrúar 2012.

Tillagan samþykkt 9:0.

32.Akraneshöfn 2012 - starfshópur v. uppbyggingar

1112153

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að skipa starfshóp sem hafi það verkefni að skoða hvernig efla megi starfsemi Akraneshafnar. Bæjarráði er falið að útbúa erindisbréf fyrir hópinn og gera tillögur um skipan hans.

Tillagan samþykkt 9:0.

33.Stjórnmálasamtök á Akranesi 2012 - framlög

1112154

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir með vísan til 5. gr. laga nr. 162/2006, að gera ráð fyrir framlagi í fjárhagsáætlun ársins 2012 til starfsemi stjórnmálaflokka á Akranesi að fjárhæð kr. 1.000.000.-

Tillagan samþykkt 9:0.

34.Styrkir 2012 - úthlutun

1112155

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir sjóði vegna úthlutunar styrkja til einstaklinga og félagasamtaka á grundvelli reglna sem Akraneskaupstaður hefur sett. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir kr. 8.572.000 sem aðilar geta sótt um fjárveitingu til í gegnum um viðkomandi stofu sem veitir umsögn/tillögu til bæjarráðs sem síðan tekur ákvörðun um úthlutun innan ramma fjárhagsáætlunar.

Tillagan samþykkt 9:0.

35.Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2012 - úrvinnsla

1112156

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkomnum tillögum frá bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem haldinn var þann 29. nóvember 2011 til umfjöllunar og úrvinnslu hjá Fjölskyldu- og Framkvæmdaráði.

Tillagan samþykkt 9:0.

36.Sorpmál 2012

1112157

Tillaga tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 13. desember 2011:
Bæjarstjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra skipulags- og umhverfisstofu að taka saman tölulegar upplýsingar um sorpmagn, losun sorps til Fíflholta, endurvinnslu og flokkun sorps undanfarinna ára á Akranesi og leggja fyrir bæjarstjórn til upplýsinga.
Greinargerð framkvæmdastjóra skipulags- og umhverfisstofu dags. 13. janúar 2012 er meðfylgjandi.

Tillagan samþykkt 9:0.

37.Lífeyrisskuldbinding Akraneskaupstaðar

1201120

Bréf bæjarráðs dags. 13. janúar 2012, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að eftirfarandi tillaga um lifeyrisskuldbindingu Akraneskaupstaðar verði samþykkt:
"Bæjarstjórn Akraness samþykkir að fela bæjarstjóra í samvinnu við lífeyrissjóð starfsmanna Akraneskaupstaðar og sveitarfélaga að gera tillögu til hlutaðeigandi stjórnvalda um breytingu laga, þannig að lífeyrissjóðum verði heimilt að taka eigin skuldabréf sveitarfélaga, eða skuldabréf með ábyrgð sveitarfélaga, sem greiðslu áfallinna lífeyrisskuldbindinga sveitarfélagsins.Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að afborganir og vextir af skuldabréfi Orkuveitu Reykjavíkur í eigu Akraneskaupstaðar, verði ráðstafað til greiðslu lífeyrisskuldbindinga Akraneskaupstaðar hjá Lífeyrissjóði Akraneskaupstaðar á meðan leitað verður eftir framangreindri lagabreytingu eða hún verður samþykkt".

Tillagan samþykkt 9:0.

38.Fjárhagsáætlun til 3 ára - 2013-2015

1201106

Bréf bæjarráðs dags. 13. janúar 2012, þar sem 3. ára fjárhagsáætlun 2013-2015 er lögð fram til fyrri umræðu.
Fjárhagsáætlunin lögð fram á fundinum.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögunni og lagði til að henni verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Samþykkt 9:0.

39.Samfélagsverðlaun Akraness

1201133

Tillaga að samþykkt um samfélagsverðlaun.

40.Bæjarstjórnarfundur - frestun

1201041

Bæjarstjórnarfundur vegna 70 ára afmælis Akraneskaupstaðar.

41.Knattspyrnufélag ÍA - verðlaun.

1108131

42.Bæjarstjórn - 1137

1112010

Fundargerð bæjarstjórnar frá 13. desember 2011.

Fundargerðin samþykkt 9:0.

43.Bæjarstjórn - 1138

1112020

Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. desember 2011.

Fundargerðin samþykkt 9:0.

44.Bæjarráð - 3139

1112014

Fundargerð bæjarráðs frá 15. desember 2011.

Lögð fram.

44.1.Verkefni í nýsköpunar-, atvinnu- og ferðamálum

1112055

44.2.Heiðarbraut 40, breytt deiliskipulag

1105061

44.3.Þjónustukönnun Capacent Gallup.

1112037

44.4.Fjárlagabeiðnir 2012

1110107

44.5.Ályktun vegna tillagna frá starfshópi sjávarútvegsráðherra

1112030

44.6.Frumvarp til laga - um Landsvirkjun o.fl.mál nr. 318

1112028

44.7.Fjárhagsáætlun 2012 - Skipulags- og umhverfisstofa

1110098

44.8.Miðbær 1 - umsókn um lóð

1110149

44.9.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - fyrirspurn um fráveitumál

1111071

44.10.Endurnýjun lánalína og heimild til nýtingar

1111158

44.11.Nýbúafræðsla - framlög jöfnunarsjóðs 2012

1109114

44.12.Ályktun gegn niðurskurði í tónlistarskólum

1112048

44.13.Afskriftir 2011

1109092

44.14.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2011

1106063

44.15.Kaup á tölvubúnaði

1112067

44.16.Ályktun bæjarstjórnar Grundarfjarðar

1112061

Gunnar Sigurðsson óskar eftir að eftirfarandi tillaga verði bókuð:
Bókun á bæjarstjórnarfundi 17.janúar 2012 vegna heilbrigðisþjónustu á Akranesi.

Bæjarstjórn Akraness mótmælir á fundi sínum þriðjudaginn 17.janúar 2012 þeirri skerðingu á heilbrigðisþjónustu á Akranesi sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2012. Þar eru framlög til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) skorin það mikið niður að stjórnendur þar hafa neyðst til að grípa til þess úrræðis að leggja niður öldrunarlækningadeild sjúkrahússins á Akranesi. Við það tapast 14 legurými og hátt í 30 manns missa vinnuna, eingöngu konur.

Bæjarstjórn Akraness krefst þess að ríkisvaldið tryggi rekstur HVE þannig að á Akranesi sé unnt að halda fullri heilsugæsluþjónustu og bráðaþjónustu, þar með taldar skurðstofur, þannig að tryggt sé að m.a. fæðingadeild og slysamóttaka haldist óbreytt. Bent skal á að sjúkrahúsið á Akranesi er utan skilgreindra hamfarasvæða og þjónar því sem varasjúkrahús höfuðborgarsvæðisins ef til stórkostlegra náttúruhamfara kæmi.

Ennfremur krefst Bæjarstjórn Akraness þess að ríkisvaldið tryggi að unnt sé að halda út öldrunarþjónustu á Akranesi, bæði sjúkraþjónustu og endurhæfingu, sambærilegri og á sér stað fyrir lokun öldrunarlækningadeildarinnar á sjúkrahúsinu. Þessi þjónusta verði þá veitt í tengslum við HVE og Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Akranesi.


Bæjarfulltrúarnir á Akranesi.

44.17.Stuðningur við frumkvöðla og fyrirtæki - reglur Akraneskaupstaðar

1111088

44.18.Atvinnu- og nýsköpunarhelgi 9.-12. mars 2012.

1112079

44.19.Endurgreiðsluhlutfall - Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga

1112076

44.20.Fjöliðjan - Ósk um kaup á pökkunarbúnaði

1109135

44.21.Strætó bs. - útboð á akstri

1103168

44.22.Krókalón - lóðamál vegna deiliskipulags

903112

44.23.Starfshópur um atvinnumál - 13

1111019

44.24.Starfshópur um atvinnumál - 14

1111037

44.25.Starfshópur um atvinnumál - 15

1112015

44.26.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2011

1102040

45.Bæjarráð - 3140

1112024

Fundargerð bæjarráðs frá 29. desember 2011.

Lögð fram.

45.1.Verklagsreglur um ráðningar hjá Akraneskaupstað

1112104

45.2.Styrkbeiðni - útgáfa karlakórsins Svanir.

1010013

45.3.Framkvæmdastofa - rekstraryfirlit 2011

1102355

45.4.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Akraneskaupstað

1112125

45.5.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.

1101181

45.6.Fjárhagsáætlun 2012

1109132

45.7.Veikindi starfsmanna - umsóknir um viðbótarframlag

1003078

45.8.Orkuveita Reykjavíkur - Fundarboð eigendafundar 5. janúar 2012.

1112159

45.9.Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi - fundargerðir 2011

1101099

45.10.Sorpurðun Vesturlands - fundargerðir stjórnar 2011

1103108

45.11.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2011

1102040

46.Bæjarráð - 3141

1201001

Fundargerð bæjarráðs frá 3. janúar 2012.

Lögð fram.

46.1.Fjárhagsáætlun 2012

1109132

47.Bæjarráð - 3142

1201002

Fundargerð bæjarráðs frá 5. janúar 2012.

Lögð fram.

47.1.Fjárhagsáætlun 2012

1109132

47.2.Bæjarstjórnarfundur - frestun

1201041

47.3.Íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar - samkomur

1201042

47.4.Strætó bs. - útboð á akstri

1103168

48.Bæjarráð - 3143

1201006

Fundargerð bæjarráðs frá 12. janúar 2012.

Lögð fram.

48.1.Fab Lab 2012 - framlag

1112145

48.2.Fjárhagsáætlun 2012

1109132

48.3.Elli- og örorkulífeyrisþegar - tekjuviðmið vegna álagningar fasteignagjalda 2012

1201105

48.4.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2011

1106063

48.5.Gjaldskrá fyrir hundahald 2012

1201044

48.6.Gjaldskrár 2012

1112160

48.7.Lífeyrisskuldbinding Akraneskaupstaðar

1201120

48.8.Fjárhagsáætlun til 3 ára - 2013-2015

1201106

48.9.Íþróttahús - niðurfelling á húsaleigu

1201122

49.Skipulags- og umhverfisnefnd - 60

1112011

Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 19. desember 2011.

Lögð fram.

49.1.Ægisbraut 15 - fyrirspurn

1112059

49.2.Kirkjubraut 46 - breyting á lóð

1111097

49.3.Skipulagsreglugerð - umsögn

1107063

49.4.Fyrirspurn frá Á stofunni ehf um áætlaðar breytingar á Sólmundarhöfða 7

1110263

49.5.Garðabraut 4-6 umsókn um viðbyggingu

1112035

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00