Fara í efni  

Bæjarstjórn unga fólksins

22. fundur 21. febrúar 2024 kl. 17:00 - 19:00 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Björn Viktor Viktorsson fulltrúi ÍA
  • Davíð Logi Heiðarsson fulltrúi nemendaráðs Brekkubæjarskóla
  • Ellert Kári Samúelsson fulltrúi tónlistarskóla
  • Eydís Glóð Guðlaugs Drífudóttir fulltrúi Arnardalsráðs
  • Valgarður L. Jónsson forseti bæjarstjórnar
  • Einar Brandsson 1. varaforseti
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Kristinn Hallur Sveinsson bæjarfulltrúi
  • Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarbókavörður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri
  • Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins
Fundargerð ritaði: Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Heildarstefna Akraneskaupstaðar - Bæjarstjórn unga fólksins

2402227

Björn Viktor Viktorsson Tekur fyrstur til máls og ræðir um heildarstefnu Akraneskaupstaðar. Ungmennaráð fékk stefnuna til skoðunar og lýsti yfir ánægju með hana. Björn kallar eftir aðgerðaráætlun og spyr einnig um framtíðarplön í atvinnumálum á Akranesi .



Til máls tóku:

Sædís Alexía Sigurmundsdóttir

Valgarður Lynggdal Jónsson

Ragnar Sæmundsson

Kristinn Hallur Sveinssson
Fylgiskjöl:

2.Símanotkun í grunnskólum - bæjarstjórn unga fólksins

2402228

Næst á mælendaskrá var Eyja Rós Sigþórsdóttir og ræddi hún um reglur varðandi símanotkun og mötuneyti í báðum skólum bæjarins. Hún leggur til að reglur séu samræmdar á milli skóla til að koma í veg fyrir ríg og meting.

Einnig telur Eyja Rós það til bóta að hafa eitt stórt eldhús fyrir skóla á Akranesi.

Hollur og góður matur er nauðsynlegur öllum börnum. En ekki hafa allir ráð á að greiða fyrir mat fyrir börnin sín. Eyja leggur tilað það verði gjaldfrjáls matur í grunnskólum á Akranesi.



Til máls tóku:

Sædís Alexía Sigurmundsdóttir

Einar Brandsson

Ragnar Sæmundsson

Líf Lárusdóttir













Fylgiskjöl:

3.Kynninga á námsframboði og tækifærum í námi fyrir ungt fólk - bæjarstjórn unga fólksins

2402229

Jóell Þór talar um mikilvægi menntunar og hefur áhyggjur af brottfalli nemenda úr framhaldsskólum.Hann telur að auka þurfi kynningar á námsframboði, sérstaklega fyrir elstu árganga grunnskólanna.



Til máls tóku:

Kristinn Hallur Sveinssoon

Björn Guðmundsson

Líf Lárusdóttir

Valgarður Lyngdal Jónsson



Fylgiskjöl:

4.Þátttaka barna og unglinga í íþrótta og frístundastarfi - bæjarstjórn unga fólksins

2402230

Kara Líf velti upp sppurningunni hvort íþóttaiðkun væri fyrir alla og hvort fjárhagsleg staða fjölskyldunnar væri ástæða brottfalls úr íþróttum. H'un benti á að æfingagjöld eru eitt en afleiddur kostnaður væri mikill t.d mót, búnaður fatnaður, ferðir ol. Hún benti að að hættan er að jaðarhópar verði útundan. kara benti á það er ódýrara fyrir samfélagið að tryggja börnum jöfn tækifæri



Til máls tóku:

Einar Brandsson

Björn Guðmundsson



Fylgiskjöl:

5.Virkara eftirlit með ástandi húsnæðis - bæjarstjórn unga fólksins

2402241

Eydís Glóð Guðlaugs Drífudóttir ræddi um ástand skólahúsnæðis á Akranesi og mikilvægi þess að hafa reglulegt eftirlit með mannvirkjum og aukið viðhald til að koma í veg fyrir skemmdir og að það ástqand endurtaki sig sem verið hefur. Líf og heilsa barna verður að vera forgangsatriði.



Til máls tóku:

Ragnar Sæmudsson

Kristinn Hallur Sveinsson

Björn Guðmundsson

Líf Lárusdóttir





Fylgiskjöl:

6.Forvarnir - Bæjarstjórnarfundur unga fólksins

2402242

Ellert Kári Samúelsson var næstur á mælendaskrá og ræddi um forvarnirí áfengis og vímuefnnotkun ungmenna. Hann lýsti yfir áhyggjum á aukinnni neyslu ungmenna og þvví að fleiri ungmennei eru byrjuð að neyta vímuefna fyrr en oft áður.



Til máls tóku:

Einar Brandsson

Kristinn Hallur Sveinsson

Björn Guðmundsson









7.Einstaklingsíþróttir kostnaður iðkenda - Bæjarstjórn unga fólksins

2402245

Davíð Logi Heiðarsson ræddi ujm mikinn kostnað við einstaklingsíþróttir sérstaklega þegar einstaklingar hafa náð langt í sinni grein. Hann nefnir að þar sem Akranes sem stefnir á að vera íþróttasamfélag/bær Akraneskaupstaður að stofna styrktarsjóð til að styðja við ungt fólk. Einnig væri hægt að nýta sstyrktarjóðinn fyrir ungt listafólk.



Til máls tóku:

Einar Brandsson

Björn Guðmundsson





Fundi slitið - kl. 19:00.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu