Fara í efni  

Bæjarráð

3181. fundur 27. febrúar 2013 kl. 16:00 - 17:10 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Guðmundur Páll Jónsson formaður
  • Hrönn Ríkharðsdóttir varaformaður
  • Þröstur Þór Ólafsson aðalmaður
  • Einar Brandsson áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Sigurðsson Varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Andrés Ólafsson fjármálastjóri og settur bæjarritari
  • Ragnheiður Þórðardóttir þjónustu- og upplýsingastjóri
Fundargerð ritaði: Ragnheiður Þórðardóttir þjónustu- og upplýsingastjóri
Dagskrá
Einar Brandsson áheyrnarfulltrúi mætti til fundarins að lokinni afgreiðslu á 1. tölul. dagskrár.

1.Skaginn hf. - samkomulag v. gatnagerðargjalda o.fl.

1210196

Bréf Þorgeirs og Ellerts hf., dags. 21. febrúar 2013, þar sem farið er fram á að gert verði samkomulag við fyrirtækin Skagann hf., Þorgeir og Ellert hf. og Grenjar ehf. um kostnaðarhlutdeild Akraneskaupstaðar sem samkvæmt útreikningum mv. magntölur Siglingastofnunar er kr. 8.960.908.-

Gunnar Sigurðsson varaáheyrnarfulltrúi sat fundinn við umfjöllun á þessum lið í stað Einars Brandssonar áheyrnarfulltrúa með vísan til hæfisreglna sveitarstjórnarlaga.

Bæjarráð felur Framkvæmdastofu að skoða málið með tilliti til fyrirliggjandi samninga og verkáætlunar.

Gunnar Sigurðsson vék af fundi.

2.Reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega

1302182

Tillaga bæjarstjóra ásamt greinargerð um breytingu á reglum um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.

Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra að afla frekari gagna.

3.Baugalundur 14, umsókn um lóð.

1302160

Umsókn Sveins Sturlaugssonar um lóðina nr. 14 við Baugalund.

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til Sveins Sturlaugssonar.

4.Tölvukaup skv. tilboði

1202226

Tillaga bæjarstjóra um fjárveitingu til endurnýjunar tölvubúnaðar í stofnunum bæjarins að fjárhæð kr. 2.934.000.- Um er að ræða kostnað við kaup á 20 tölvum auk uppsetningar, til ráðstöfunar á yfirstandandi ári.

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um fjárveitingu að fjárhæð 2.934.000.- Fjárhæðar verði getið í viðauka fjárhagsáætlunar ársins 2013 og fjárveitingin verði tekin af liðnum ,,óviss útgjöld" viðhald áhalda 21-95-4660-1.

5.Viðburðir á vegum Akraneskaupstaðar árið 2013

1301420

Tímasetningar viðburða á árinu 2013.

Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi tillögu bæjarstjóra að tímasetningu viðburða á vegum Akraneskaupstaðar árið 2013.

6.27. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

1301234

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 14. febrúar 2013, þar sem boðað er til 27. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður á Grand hóteli í Reykjavík þann 15. mars n.k. Meðfylgjandi er dagskrá landsþingsins.

Lagt fram.

7.Stjórnskipulagsbreytingar.

1302096

Bæjarráð samþykkir tillögu starfshóps um stjórnskipulags um útfærslu á skipuriti samþykktu í bæjarstjórn 11. desember 2012.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa stöður sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, umhverfis- og framkvæmdasviðs og atvinnu- og ferðamálafulltrúa.

Einar Brandsson lagði fram eftirfarandi bókun:

,,Tel nýtt skipurit vera spor í rétta átt og geri ekki athugasemdir við það. Ég mæli með að skipuritið verði síðar fullunnið þannig að nöfn og starfsheiti starfsmanna, stofnana, deilda og sviða komi fram.

Geri ekki athugasemd við að auglýst verði eftir framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og atvinnu- og ferðamálafulltrúa. Ég tel að í ljósi aðstæðna þá eigi ekki að auglýsa eftir framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs á þessu ári. Við erum nú með á launaskrá fyrrverandi bæjarritara út árið og einn fyrrverandi bæjarstjóra á launaskrá til loka apríl. Störf framkvæmdastjórans verður að leysa með því að dreifa þeim á núverandi starfsmenn."

Fundi slitið - kl. 17:10.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00