Bæjarráð
1.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2010 - samstæða
1105057
2.Afskriftir 2010
1012142
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að afskriftum samtals að fjárhæð kr. 2.801.100.-
3.Atvinnurekstur í íbúðahverfi, Skagabraut 25
1105041
Bæjarráð tekur undir með bréfriturum og ítrekar fyrri afstöðu sína og felur framkvæmdastjóra skipulags- og umhverfisstofu að annast málið með þeim úrræðum sem nauðsynleg eru.
4.Norðurálsmótið í knattspyrnu 2011
1105062
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samningsupphæð vegna ársins 2011 verði 2,7 m.kr. til að standa straum að stórauknum gestafjölda vegna mótsins. Viðbótarfjárhæð að upphæð 1.5 m.kr. verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.
Beiðni um endurskoðun samnings til 3ja ára er vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2012.
5.Saga Akraness - ritun.
906053
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og óskar eftir viðræðum við formann ritnefndar um málið.
6.FIMA - húsnæðismál
1105092
Bæjarráð vísar til þess að í nóvember á árinu 2010 lauk sameiginleg nefnd bæjarins og ÍA störfum sínum og forgangsraðaði verkefnum og fjárfestingum í íþróttamálum til næstu framtíðar. Um sameiginlega niðurstöðu íþróttahreyfingarinnar og bæjarins var að ræða. Í ljósi þess og núverandi fjárhagsstöðu kaupstaðarins er ekki hægt að verða við beiðni félagsins að svo komnu máli, en beiðni varðandi búnaðarkaup er vísað til Framkvæmdastofu til nánari skoðunar.
Bæjarráð getur ekki orðið við öðrum beiðnum í erindinu.
7.Byggingaframkvæmdir og staða byggingafyrirtækja.
1010101
Bæjarráð samþykkir að greiða umræddan kostnað. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fjárveitingu til verkefnisins 0,5 m.kr. verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.
8.Umsókn um lóð
1105034
Bæjarráð staðfestir tillögu nefndarinnar.
9.Samráðsfundur ÍA og Akraneskaupstaðar
1105063
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra undirbúa fundinn.
10.Búseta og þjónusta við fatlaða - Fasteignir ríkisins
1105072
Bæjarráð óskar eftir að Fjölskyldustofa ásamt Framkvæmdastofu skoði sérstaklega hagsmuni Akraneskaupstaðar í þessu máli og leggi sjálfstætt mat á ástand viðkomandi eigna og hvernig standa skuli að hugsanlegri leigu og/eða kaupum Akraneskaupstaðar á umræddum eignum.
11.Lífeyrissjóður Akranesk. - breyting á samþykktum 19. apríl 2011
1105067
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að breytingarnar verði samþykktar.
12.Bæjarskrifstofa - tölvubúnaður.
1105101
Bæjarráð samþykkir erindið, fjárveiting komi úr tækjakaupasjóði.
13.Saga Akraness - upplýsingar og gögn um ritun
1104148
Lagt fram.
14.Fjölbrautaskóli Vesturlands - Endurskoðun samnings.
1010163
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samningurinn verði samþykktur.
15.Hýsing og rekstrarþjónusta fyrir Akraneskaupstað
1101160
Bæjarráð felur bæjarstjóra að segja upp núverandi samningi við Securstore um hýsingu og rekstrarþjónustu tölvubúnaðar hjá Akraneskaupstað og undirbúa útboð á þjónustunni.
16.Ræsting á leikskólum Akraneskaupstaðar
1105105
Bæjarráð felur bæjarstjóra að segja upp núverandi samningum um ræstingu á leikskólum Akraneskaupstaðar og fela Framkvæmdastofu að annast nauðsynlegan undirbúning á nýju útboði á ræstingu leikskólanna, þó þannig að hægt verði að bjóða í hvern leikskóla fyrir sig eða alla.
17.Sveitarstjórnartrygging
1103127
Bæjarráð felur felur bæjarstjóra að segja upp núverandi samningi við VÍS um tryggingar fyrir Akraneskaupstað og undirbúa útboð á þjónustunni.
18.Landsbanki - Samningur um bankaviðskipti
1012143
Bæjarráð felur bæjarstjóra að segja upp núverandi samningi um bankaviðskipti við Landsbankann og undirbúa útboð á þjónustunni.
19.Símaþjónusta - útboð á þjónustu.
1105110
Bæjarráð felur bæjarstjóra að segja upp núverandi samningi um símaþjónustu við Símann og undirbúa útboð á þjónustunni.
20.Stefnumótun Fjölskyldustofu
1101177
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og fjárveitingu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.
21.Listabraut-hljóðfæra og söngnám samstarf grunnskólanna
1105099
Hrönn vék af fundi við umfjöllun málsins með vísan til hæfisreglna sveitarstjórnarlaga.
Afgreiðslu frestað.
22.Langisandur - útivistarsvæði.
1007074
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 19:20.
Á fundinn mættu þeir Jón Þór Hallsson og Jóhann Þórðarson frá Aliti ehf, og Andrés Ólafsson og Sigmundur Ámundason, starfsmenn Akraneskaupstaðar ásamt Skúla Garðarssyni kjörnum endurskoðenda.
Þeir Jón Þór og Jóhann gerðu grein fyrir ársreikningi Akraneskaupstaðar og endurskoðunarskýrslu fyrir árið 2010 sem þeir fóru yfir og kynntu fyrir bæjarfulltrúum. Skýrslan lögð fram.