Fara í efni  

Bæjarráð

3625. fundur 13. maí 2026 kl. 13:00 - 14:55 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Ragnar B. Sæmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson bæjarstjóri

1. 2605-3707 - Tækifærisleyfi - Knattspyrnuleikur ÍA 13.05.2026

Umsagnarbeiðni og umsókn fyrir Knattspyrnufélag Í.A. um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna Knattspyrnuleik ÍA sem halda á 13. maí 2026 í hátíðarsal Jaðarsbökkum.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda, með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt 3:0

 

2. 2605-3712 - Tækifærisleyfi - Sumargleði - 13.06.2026

Umsagnarbeiðni og umsókn ásamt teikningum af svæði fyrir tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna tónleika, sumargleði sem halda á 13. júní 2026 á planinu að Stillholti 16-18 Akranesi.

Bæjarráðs gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð vekur athygli leyfisveitanda á að rétt sé að afla umsagnar frá húsfélagi Stillholts 16-18 vegna fyrirliggjandi umsóknar rekstrarhafa.

Samþykkt 3:0

 

3. 2605-3675 - Tækifærisleyfi Lopapeysan / tónleikar 30.06.2026 - 04.07.2026

Tækifærisleyfi á Írskum dögum - Lopapeysan / tónleikar 30. júní - 4. júlí 2026.

Lagt fram.

Málið fer í frekari úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 3:0

 

4. 2605-3700 - Rafrænir reikningar

Frá og með 1. janúar 2022 hefur Akraneskaupstaður eingöngu tekið við rafrænum reikningum. Fyrirkomulagið hefur gengið vel í góðri samvinnu við lánadrottna. Á árinu 2025 bárust Akraneskaupstað alls 18.398 reikningar og þar af alls 17.931 rafrænir reikningar í gegnum skeytamiðlun.

Tillaga er komin fram frá fjármálastjóra um að frá 1. júlí nk. taki Akraneskaupstaður eingöngu við rafrænum reikningum í gegnum skeytamiðlun. Markmiðið með breytingunni er m.a. að auka skilvirkni í skráningu, greiðslu reikninga og lágmarka villur.

Bæjarráð samþykkir að frá 1. júlí 2026 taki Akraneskaupstaður eingöngu við rafrænum reikningum í gegnum skeytamiðlun.

Samþykkt 3:0

 

5. 2604-3405 - Gott að eldast - samþætt stuðningsþjónusta og heimahjúkrun

Gerð var úttekt á aðstæðum Höfða til að mæta þörfum samþættrar stuðningsþjónustu og heimahjúkrunar. Úttektin lögð fram til kynningar.

Málið var tekið fyrir á fundi velferðar- og mannréttindaráðs nr. 267 og vísað til bæjarráðs til kynningar.

Bæjarráð leggur áherslu að samtal eigi sér stað við Hvalfjarðarsveit varðandi hlutdeild í húsnæðinu og aðkomu að verkefninu.

Einnig telur bæjarráð mikilvægt að skýra aðkomu og hlutverk Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í aðlögun húsnæðisins að þjónustunni.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt 3:0

 

6. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Fyrir liggja tillögur varðandi fyrirkomulag og er sveitarfélögunum ætlað að taka afstöðu til:

  1. Val á sviðsmynd: Hvort stefnt skuli að sviðsmynd 1 eða 2 við fulla opnun, eða hvort útfærslan eigi að vera með öðrum hætti.
    1. Verkefnastjórn leggur til að sviðsmynd 1 verði fylgt fram að áramótum og sviðsmynd 2, eða full opnun, verði langtímamarkmiðið.
  1.  
  2. Útfærsla tekjumódels: Val milli valkosts A (skipt eftir íbúafjölda) og valkosts B (50% fastur kostnaður eftir íbúafjölda og 50% breytilegur eftir keyptum sólarhringum), eða hvort útfærslan eigi að vera með öðrum hætti.
  3. Verkefnastjórn leggur til að valkosti B verði fylgt, á grundvelli jafnræðissjónarmiða barna á svæðinu.
  1. Fjöldi fulltrúa í fulltrúaráði: Stofnaðilar þurfa að taka afstöðu til þess hve margir fulltrúar eigi að sitja í fulltrúaráði og hvernig tilnefningu þeirra verði háttað.
    1. Verkefnastjórn leggur til að einn fulltrúi, frá hverju sveitarfélagi, komi úr röðum notendaráðs.
  1. Framlag stofnenda: Ákvörðun um skiptingu stofnfjár milli sveitarfélaga.
    1. Verkefnastjórn leggur til jafna skiptingu milli sveitarfélaga.
  2. Tímasetning stofnunar opnunar: Staðfesting á að formleg skráning fari fram tímanlega fyrir áformaða opnun haustið 2026.

Málið var til umfjöllunar á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 11. maí sl. g málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Bókun ráðsins var svofelld:

Velferðar- og mannréttindaráð tekur undir tillögur verkefnahóps um afgreiðslu allra liða að undanskildum lið 2, er varðar útfærslu tekjumódels. Velferðar- og mannréttindaráð er mótfallið báðum þeim útfærslum sem verkefnahópur lagði fram og leggur til að farin verði tillaga C, sem gerir ekki ráð fyrir neinum fastakostnaði af hálfu sveitarfélaganna, heldur greiði þau hærra gjald fyrir þá sólarhringa sem þau nýta í skammtímadvölinni. Áætlað gjald yrði ákvarðað í upphafi hvers árs á grundvelli rekstraráætlunar og áætlaðrar nýtingar.

Velferðar- og mannréttindaráð leggur einnig til að öðrum sveitarfélögum standi til boða að kaupa pláss í úrræðinu sem sveitarfélögin á Vesturlandi sjá ekki fram á að geta nýtt. Tekjur af sölu ónýttra rýma til annarra sveitarfélaga kæmu til lækkunar á heildarkostnaði áður en innra gjald yrði endanlega gert upp.

Sviðsstjóra er falið að upplýsa verkefnahópinn um afstöðu velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar.

Bæjarráð tekur undir bókun velferðar- og mannréttindaráðs varðandi leið C. Bæjarráð leggur til að auk stofnframlags verði til viðbótar gert ráð fyrir tilteknu viðbótarfjármagni sem tryggi rekstur úrræðisins (fastan kostnað) til að lágmarki þriggja mánaða. Verði félaginu slitið endurgreiðast stofnframlögin til sveitarfélaganna í sama hlutfalli og það var greitt inn.

Samþykkt 3:0

 

7. 2605-3514 - Matarmiðar - Endurskoðun verðgildis

Til skoðunar hefur verið að hækka verðgildi matarmiða Akraneskaupstaðar að kröfu þjónustuveitanda.

Bæjarráð samþykkir að verðgildi matarmiða Akraneskaupstaðar verði kr. 2.400 með gildistíma frá 1. júní 2026.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð telur vera rými innan samþykktrar fjárhagsáætlunar vegna þessa útgjaldaliðar og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu