Fara í efni  

Bæjarráð

3623. fundur 30. apríl 2026 kl. 08:15 - 11:15 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Ragnar B. Sæmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson bæjarstjóri

1. 2601-0034 - Leikskólamál - Valkostagreining 2025-2026

Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar.

Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs situr fundir undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 2 til og með 6.

Sigurður Páll Harðarson situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð felur sviðsstjórum skipulags- og umhverfissviðs og skóla- og frístundasviðs frekari úrvinnslu málsins í samráði við leikskólastjóra Akrasels.

Samþykkt 3:0

Sigurður Páll Harðarson víkur af fundi.

 

2. 2604-3126 - Erindi leikskólastjóra til skóla- og frístundaráðs Barngildi í leikskólum

Leikskólastjórar á Akranesi óska eftir endurskoðun á barngildum Akraneskaupstaðar. Lagt er til að fyrst verði litið til þess að hækka barngildi elsta árgangs leikskólanna úr 0,8 í 1,0. Sú breyting myndi fela í sér að farið yrði úr 10 börnum á hvern starfsmann niður í 8 börn á hvern starfsmann fyrir 5-6 ára börn.

Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindi leikskólastjóra um endurskoðun barngilda í leikskólum Akraneskaupstaðar og vísar því til afgreiðslu hjá bæjarráði. Ráðið lýsir stuðningi við að barngildi elsta árgangs verði hækkað úr 0,8 í 1,0 með það að markmiði að bæta gæði þjónustu, auka öryggi barna og bæta starfsaðstæður starfsfólks. Umrædd breyting felur í sér fjölgun um 3,4 stöðugildi sem skiptast á milli leikskóla sveitarfélagsins. Áætlaður heildarkostnaður vegna breytingarinnar nemur um 40 m.kr.

Bæjarráð samþykkir að barngildi elsta árgangs í leikskólum Akraneskaupstaðar verði hækkað úr 0,8 í 1,0 og að veita viðbótarfjármagni til leikskólanna á árinu 2026 vegna þessa samtals að fjárhæð kr. 16.800.000 en gera þarf ráð fyrir þessari breytingu við komandi fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027.

Útgjöldunum verði mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangis ársins sem nemur þessari fjárhæð og viðbótarfjármagnið fært inn á rekstrardeildir leikskólanna samkvæmt réttri hlutfallskiptingu miðað við barngildi hvers skóla fyrir sig.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 8 vegna ráðstöfunarinnar og vísar til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

3. 2604-3210 - Erindi frá leikskólastjórum um breytingar á reiknilíkani leikskólanna

Leikskólastjórar á Akranesi óska eftir að reiknilíkan leikskólanna verði uppfært og skerðingar vegna starfsmanna í eldhúsum og umsjón þvotta verði teknar út.

Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að reiknilíkan leikskólanna verði endurskoðað og að skerðingar vegna starfsmanna í eldhúsum og umsjónar þvotta verði felldar út. Ráðið telur mikilvægt að reiknilíkanið taki mið af aðstæðum í leikskólum, meðal annars vegna aukinna verkefna tengdum þvotti í kjölfar fjölgunar yngri barna, aukinna krafna um hollustuhætti og matargerð frá grunni sem og vaxandi þarfa fyrir sérfæði vegna ofnæmis og óþols. Breytingin felur í sér aukningu um eitt stöðugildi sem dreifist á alla leikskóla sveitarfélagsins og er áætlaður kostnaður um 11 m.kr. Skóla- og frístundaráð vísar málinu til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir erindið og ráðstöfun fjármuna til að mæta þeim kostnaðarauka sem af því hlýst á árinu 2026 samtals að fjárhæð kr. 4.584.000en gera þarf ráð fyrir þessari breytingu við komandi fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027.

Útgjöldunum verði mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangis ársins sem nemur þessari fjárhæð og viðbótarfjármagnið fært inn á rekstrardeildir leikskólanna samkvæmt réttri hlutfallskiptingu miðað við útreikninga samkvæmt reiknilíkani.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 9 vegna ráðstöfunarinnar og vísar til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

4. 2602-1575 - Hljóðkerfi fyrir Akranesvöll

Á fundi 26. febrúar tók bæjarráð jákvætt í erindi um kaup á hljóðkerfi fyrir Akranesvöll á þeim forsendum að búnaðurinn verði hluti af almennum búnaði íþróttamiðstöðvarinnar og geti nýst öðrum íþróttafélögum á svæðinu. Bæjarráð fól forstöðumanni íþróttamála og íþróttamannvirkja frekari úrvinnslu mála, öflun tilboða o.fl. og málið komi að nýju fyrir bæjarráð þegar það verður tækt til fullnaðarafgreiðslu. Hér eru tilboð lög fyrir bæjarráð til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir erindið um kaup á nýju hljóðkerfi (færanlegt ) Akraneskaupstaðar fyrir Akranesvöll sem hluta af almennum búnaði íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum sem geti þá einnig nýst öðrum íþróttafélögum á svæðinu.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð samþykkir að veita viðbótarfjármagn vegna framangreinds, samtals að fjárhæð kr. 3.675.000 (kerfi frá Luxor), sem ráðstafað verði innan fjárhagsáætlunar af deild 20830-4660 og inn á deild 06510-4660. Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 10 vegna framangreinds og vísar til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð beinir þeim tilmælum til forstöðumanns íþróttamála og íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar að ráðfæra sig við starfsfólk skipulags- og umhverfissviðs varðandi möguleikana á að uppsetningi hátalara á þak stúkunnar taki mið af þeim áætlunum sem uppi eru endurbætur mannvirkisins.

 

5. 2604-3209 - Ósk um viðbótarfjármagn til kaupa á hljóðkerfið í Þorpið

Forstöðumaður Þorpsins frístundamiðstöðvar óskar eftir viðbótarfjárveitingu til kaupa á hljóðkerfi fyrir Þorpið. Um er að ræða notað hljóðkerfi frá Hinu Húsinu.

Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að Þorpinu verði veitt viðbótarfjárveiting til kaupa á hljóðbúnaði. Um er að ræða kaup á notuðum búnaði og er heildarkostnaður áætlaður 600.000 kr. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir erindið um kaup á hljóðkerfi fyrir Þorpið og viðbótarfjármagn vegna þessa samtals að fjárhæð kr. 600.000 sem ráðstafað verði innan fjárhagsáætlunar af deild 20830-4660 og inn á deild 06310-4660.

Samþykkt 3:0

 

6. 2602-1702 - Beiðni um endurskoðun samninga - Golfklúbburinn Leynir

Erindi GolfklúbbinsLeynis varðandi mögulega framtíðarstækkun Garðarvallar hafa verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Fulltrúar Akraneskaupstaður og Golfklúbbsins Leynis undirrituðu viljayfirlýsingu um framtíðarstækkun Garðarvallar þann 27. apríl sl.

Sigurður Páll Harðarson situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að setja af stað vinnu með skipulagshöfundi f.h. Akraneskaupstaðar sem hafi m.a. til hliðsjónar fyrirliggjandi hugmyndir Golfklúbbsins Leynis um stækkun Garðavallar.Gert er ráð fyrir að ný bæjarstjórn taki svo til ákvörðunar hvernig haldið verði áfram á vinnunni á komandi kjörtímabili svo sem skipan vinnuhóps o.fl.

Samþykkt 3:0

Dagný Hauksdóttir og Sigurður Páll Harðarson víkja af fundi.

 

7. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026

Mánaðaryfirlit janúar - febrúar. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir lið dagskrárlið nr. 8.

Lagt fram.

 

8. 2603-2089 - Opið bókhald

"Opið bókhald" er á lokastigi og stefnt að opnun á næstu dögum.

Lagt fram.

Bæjarráð fagnar því að "Opið bókhald" sé að verða tilbúið til birtingar og verði aðgengilegt íbúum á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 3:0

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

9. 2604-3333 - Vinnuskóli - laun unglinga

Beiðni um endurskoðun launa ungmenna Vinnuskólans sem eru á aldrinum 14 - 16 ára.

Bæjarráð samþykkir erindið sem mætt verði innan gildandi fjárheimilda ársins.Taka þarf svo mið af þessari hækkun við komandi fjárhagsáætlunargerð.

Samþykkt 3:0

 

10. 2604-2862 - Kirkjugarður Akraness - kostnaður við jarðvegsskipti

Erindi frá Akraneskirkju/Kirkjugörðum Akraness um fjárstuðning vegna jarðvegsskipta o.fl. var afgreitt á fundi bæjarráðs nr. 3622 með eftirfarandi bókun:

Bæjarráð samþykkir erindið og fjárframlag að fjárhæð kr. 2.712.000. Útgjöldunum er mætt af með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 að fjárhæð kr. 2.712.000 og fært á deild 11230-4636. Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 5 vegna framangreindrar ráðstöfunar og vísar til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarráð fellst á að endurgreiða Akraneskirkju að fullu fyrirliggjandi kostnað vegna jarðvegsskiptanna sem fram fóru árið 2023 og eru að heildarfjárhæð kr. 4.074.000 með virðisaukaskatti.

Bæjarráð samþykkti viðauka nr. 5 vegna málsins á fundi sínum nr. 3622 þann 16. apríl sl. að fjárhæð kr. 2.712.000 og vísaði til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn er ekki búin að taka málið til endanlegrar ákvörðunar og því unnt að leiðrétta fjárhæðina sem úthlutað var sem og reyndar viðaukanúmerið sem ranglega var tilgreint sem nr. 5 en átti að vera nr. 7.

Bókun bæjarráðs nú vegna málsins er því er því svofelld:

Bæjarráð samþykkir erindið og fjárframlag til Akraneskirkju að fjárhæð kr. 4.074.000.

Útgjöldunum er mætt af með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 að fjárhæð kr. 4.074.000.0 og fært á deild 11230-4636.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 7 vegna framangreindrar ráðstöfunar og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

11. 2602-1860 : Fjöliðjan - aukið rými á Smiðjuvöllum

Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar og hefur verið til lykta leitt sbr. fyrirliggjandi samning.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi leigusamning Akraneskaupstaðar f.h. Fjöliðjunnar og Línuvélar ehf. og að gert verði ráð fyrir viðbótarútgjöldum sem af því hljótast á árinu og eru samtals að fjárhæð kr. 1.670.000.

Bæjarráð samþykkir viðbótarútgjöld að fjárhæð kr. 1.670.000 sem færist á deild 02240-4421 og er útgjöldunum mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins 2026 og vísað til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

12. 2604-2956 - Rekstrarleyfi vegna veitinga - Sailor AK

Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til veitingu veitinga fyrir Sailor AK sem er á vegum Seatrips ehf. Gert er ráð fyrir að opnunartíminn sé frá kl. 11:00 - 22:00 alla daga og hámarksgestafjöldi sé 96 manns.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfi til umsækjanda með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila, þ.e. Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, Samgöngustofu og lögreglustjórans á Vesturlandi og að umsækjandi afli tilskilinna leyfa vegna bátsins þ.e. haffæraskíreini, leyfi til farþegaflutninga o.fl.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð vekur athygli leyfisveitanda á að Faxaflóahafnir sf. eru með réttu ábyrgðaraðili/rekstraraðili Akraneshafnar og að mati Akraneskaupstaðar eðlilegt og rétt að afla einnig umsagnar félagsins vegna fyrirliggjandi umsóknar Sailor AK.

 

13. 2602-1666 - Lokun þjónustuvers / bæjarskrifstofu í tilefni vorferðar starfsmannafélags 7. maí 2026

Óskað er eftir heimild að loka á bæjarskrifstofu og þjónustuveri þann 7. maí n.k. þar sem áætlað er að fara í árlega fræðslu og vorferð bæjarskrifstofu. Samþykki bæjarráð erindið verður lokun bæjarskrifstofunnar auglýst rækilega með góðum fyrirvara, á heimasíðu, samfélagsmiðlum og í þjónustuveri kaupstaðarins.

Bæjarráð samþykkir og heimilar lokun bæjarskrifstofunnar frá kl. 12:00 þann 7. maí nk. vegna vorferðar starfsmanna bæjarskrifstofu.

Samþykkt 3:0

 

14. 2604-3259 - 595. mál - Loftslagslög - Frestur til 08.05.2026

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 595. mál - Loftslagslög - Frestur til og með 8. maí 2026.

Lagt fram.

 

15. 2604-3318 - 531. mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimildir) Frestur til 24.04.2026

531. mál - Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimildir) - Frestur til 24.04.2026

Lagt fram.

 

16. 2604-3411 - Fundir bæjarráðs 2026

Kjörtímabil bæjarstjórnar er senn á enda og samkvæmt samþykktri fundardagskrá er gert ráð fyrir að síðasti bæjarráðsfundur tímabilsins sé þann 14. maí nk. sem er lögboðinn frídagur.

Bæjarráð samþykkir að haldinn verði aukafundur bæjarráðs þann 7. apríl nk. kl. 08:15.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð samþykkir að fundur bæjarráðs sem fyrirhugaður var þann 14. maí nk. og er lögboðinn frídagur, verði færður til miðvikudagsins þann 13. maí nk. kl. 13:00.

Samþykkt 3:0

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu