Fara í efni  

Bæjarráð

3269. fundur 26. nóvember 2015 kl. 17:30 - 18:00 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Guðný Jóna Ólafsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Guðný J. Ólafsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Fundargerðir 2015 - menningar- og safnanefnd

1501212

17. fundargerð menningar- og safnanefndar frá 31. ágúst 2015.
18. fundargerð menningar- og safnanefndar frá 23. september 2015.
19. fundargerð menningar- og safnanefndar frá 20. október 2015.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

2.Fundargerðir 2015 - Samtök sjávarútvegssveitarfélaga

1511246

23. fundargerð samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 5. nóvember 2015.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Fundargerðir 2015 - Starfshópur um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6

1504123

10. fundargerð starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 frá 15. september 2015.
11. fundargerð starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 frá 29. september 2015.
12. fundargerð starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 frá 13. október 2015.
13. fundargerð starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 frá 27. október 2015.
14. fundargerð starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 frá 17. nóvember 2015.
15. fundargerð starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 frá 24. nóvember 2015.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar

1502110

263. mál um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði).
338. mál um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára.
Lagt fram.

5.Skátaskálinn Skorradal - endurnýjun á samningi

1404016

Erindi skóla- og frístundaráðs þar sem óskað er eftir samþykki bæjarráðs að samningi milli Akraneskaupstaðar og Skátafélags Akraness um rekstur og uppbyggingu Skátafells í Skorradal. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 12. nóvember sl.
Sigurjón Örn Stefánsson og Helgi Hauksson fulltrúar Skátafélags Akraness taka sæti á fundinum.
Bæjarráð vísar erindinu til aukafundar bæjarráðs um fjárhagsáætlun 2016 sem haldinn verður þann 4. desember næstkomandi.

6.Bæjarhátíðir 2016, dagsetningar

1509315

Menningar- og safnanefnd samþykkir tillögu bæjarráðs um að Írskir dagar verði haldnir fyrstu helgina í júlí, þann 30. júní til 3. júlí 2016.
Lagt fram.

7.FVA - styrkur til tækjakaupa 2016

1511221

Umsókn Fjölbrautarskóla Vesturlands dags. 13. nóvember 2015, þar sem óskað er eftir að Akraneskaupstaður veiti skólanum styrk til tækjakaupa á árinu 2016, samtals kr. 2.000.000.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu.

8.Melur guesthouse - rekstrarleyfi

1510197

Erindi Sýslumannsins á Vesturlandi þar sem óskað er eftir umsögn um beiðni Melur guesthouse um rekstrarleyfi í flokki I, gistiheimili, sem reka á að Melteigi 16b.
Afgreiðsla bæjarstjóra samkvæmt 75. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar lögð fram til kynningar.

9.Kór Akraneskirkju - tækifærisleyfi

1511317

Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi og tímabundið áfengisleyfi vegna aðventutónleika Kórs Akraneskirkju sem halda á þann 28. nóvember næstkomandi frá kl. 19:00-03:00.
Afgreiðsla bæjarstjóra samkvæmt 75. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar lögð fram til kynningar.

10.Íslenskar æskulýðsrannsóknir - viðurkenning fyrir æskulýðsstarf

1511325

Ruth Jörgensdóttir Rauterberg yfirþroskaþjálfi í frístundamiðstöðinni Þorpinu, hlaut viðurkenningu í flokki nýsköpunar og þróunar í æskulýðsstarfi fyrir vinnu sína við að þróa tómstundastarf fyrir alla á ráðstefnu Íslenskra æskulýðsrannsókna sem fór fram þann 20. nóvember síðastliðinn.
Bæjarráð óskar Ruth og starfsfólki Þorpsins innilega til hamingju með viðurkenninguna.

11.Íþróttabandalag Akraness - stuðningur

1511222

Leikmenn, stjórn og heimaleikjahópur ÍA sendir Akraneskaupstað bestu kveðjur og þakkir fyrir ómetanlegan stuðning í sumar.
Lagt fram.

12.Orkuveita Reykjavíkur - stöðuskýrsla

1505149

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur frá 1. janúar til 30. september 2015.
Lagt fram.

13.ÍA - rekstur og samskipti, samningur

1510123

Erindi skóla- og frístundaráðs þar sem lagt er til að samningur um rekstur og samskipti Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness verði framlengdur um sex mánuði eða til 30. júní 2016. Fram að þeim tíma gefst tækifæri til að yfirfara samninginn.
Bæjarráð samþykkir erindi skóla- og frístundaráðs um framlengingu samnings um rekstur og samskipti Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.

14.Fjárhagsáætlun 2016 - Höfði hjúkrunar og dvalarheimili

1511182

Fjárhagsáætlun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimils fyrir árið 2016 og 2017-2019 sem samþykktar voru á fundi stjórnar 9. nóvember 2015.
Fjárhagsáætlanir afhendast til umfjöllunar og afgreiðslu eins og kveðið er á um í skipulagsskrá Höfða.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun Höfða fyrir árið 2016 og 2017-2019 og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

15.Lífeyrisskuldbindingar 2015 - samantekt

1511298

Samantekt um lífeyrisskuldbindingar Akraneskaupstaðar.
Lagt fram.

17.Tillaga um breytingu á reglum á fjárhagsaðstoð

1511079

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs um tillögu félagsmálastjóra og sviðsstjóra um að hámarksfjárhæð láns vegna ábyrgðar í tengslum við gerð húsaleigusamninga verði hækkuð í 420 þ.kr. þar sem húsaleiga hefur hækkað umtalsvert frá því að núverandi hámark var ákveðið. Kostnaður er talinn óverulegur þar sem sjaldnast er um bein fjárútlát að ræða.
Bæjarráð samþykkir erindi velferðar- og mannréttindaráðs.

18.Greiðslur til stuðningsfjölskyldna

1502159

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs um greiðslur til stuðningsfjölskyldna.
Bæjarráð vísar erindinu til aukafundar bæjarráðs um fjárhagsáætlun 2016 sem haldinn verður þann 4. desember næstkomandi.

19.Steypumót fyrir plastdósir - Fjöliðjan

1509212

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs þar sem óskað er eftir heimild til kaupa á steypumóti fyrir plastdósir sem framleiddar eru í Fjöliðjunni samtals kr. 1.780.000.
Bæjarráð samþykkir kaupin á steypumóti fyrir Fjöliðjuna. Fjárhæðinni, samtals kr. 1.780.000, verður ráðstafað af handbæru fé.

20.Íslensku vefverðlaunin 2015

1511326

Heimasíða Akraneskaupstaðar hlaut viðurkenningu fyrir besta sveitarfélagsvefinn í könnuninni ,,Hvað er spunnið í opinbera vefi 2015". Athöfnin fór fram á Grand Hótel 26. nóvember.
Bæjarráð óskar Akraneskaupstað til hamingju með viðurkenninguna og þakkar starfsmönnum sem komu að undirbúningi og gerð heimasíðunnar kærlega fyrir vel unnin störf.

21.Samningur um heimaþjónustu

1510097

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs þar sem óskað er samþykktar bæjarráðs á drögum að samningi við Húsfélagaþjónustuna ehf.
Bæjarráð samþykkir drög að samningi við Húsfélagaþjónustuna ehf.

22.Styrkir til greiðslu fasteignaskatts v/ aðila með starfsemi í menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómst

1503231

Umsókn Akur Frímúrarastúku um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Bæjarráð hafnaði umsókn þeirra á fundi sínum þann 25. júní síðastliðinn á grundvelli 5. gr. reglnanna þar sem nauðsynleg fylgigögn bárust ekki með umsókn.
Ólafur Adolfsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð hafnar erindinu þar sem gögn bárust of seint.

23.Fjárhagsáætlun 2016 - þjóðhagsspár

1507027

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna þjóðhagsspár dags. 16. nóvember 2015.
Lagt fram.

24.Úthlutunarreglur úr miðlægum tækjakaupasjóði Akraneskaupstaðar

1511242

Úthlutunarreglur úr miðlægum tækjakaupasjóði lagðar fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn Akraness.

25.Faxaflóahafnir - eigendastefna

1511188

Drög að erindisbréfi lagt fram.
Erindisbréf lagt fram og samþykkt.

26.Skógræktarfélag Akraness - styrkbeiðni

1510138

Umsókn Skógræktarfélags Akraness um fjárstyrk til verkefna á starfsárinu 2016.
Bæjarráð vísar erindinu til aukafundar bæjarráðs um fjárhagsáætlun 4. desember 2015.

27.Umsókn Sundfélags Akraness um styrk til tækjakaupa

1509390

Umsókn Sundfélags Akraness þar sem óskað er eftir fjárstyrk til tækjakaupa m.a. vegna Aldursflokkameistaramóts Íslands sem haldið verður á Akranesi í júní á næsta ári.
Bæjarráð vísar erindinu til aukafundar bæjarráðs um fjárhagsáætlun 4. desember 2015.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00