Fara í efni  

Bæjarráð

3268. fundur 12. nóvember 2015 kl. 16:30 - 19:26 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Fundargerðir 2015 - Samband ísl. sveitarfélaga

1501219

Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 831 frá 30. október 2015.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Tónberg - salur Tónlistarskólans á Akranesi

1511168

Lárus Sighvatsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi og Ingþór Bergmann formaður menningar- og safnanefndar taka sæti á fundinum til að ræða málefni Tónbergs.
Bæjarráð þakkar þeim Lárusi og Ingþór fyrir komuna og upplýsandi umræður.

3.Viðburðir 2016, dagsetningar

1509315

Ingþór Bergmann formaður menningar- og safnanefndar kynnir dagsetningar viðburða sem stefnt er að halda á Akranesi árið 2016.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við menningar- og safnanefnd að Írskir dagar verði áfram fyrstu helgina í júlí 2016.

4.Beiðni um námsvist í tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags

1508413

Erindi Tónlistarskólans á Akureyri, dags. 27. ágúst 2015, þar sem óskað er eftir að Akraneskaupstaður greiði kostnað við kennslu nemanda við tónlistarskólann. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 10. september sl.
Bæjarráð hafnar umsókn Tónlistarskólans á Akureyri vegna nemanda sem stundar saxafónnám á grunnstigi við skólann.
Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda sem eru á framhaldsskólastigi til tónlistarnáms eftir búsetu er úr gildi fallið auk þess sem saxófónnám á grunnstigi er kennt við Tónlistarskóla Akraness.

5.Tónlistarnám á miðstigi utan lögheimilissveitarfélags

1509250

Erindi Tónlistarskólans í Kópavogi, dags. 14. september 2015, þar sem óskað er eftir að Akraneskaupstaður greiði kostnað við kennslu nemanda á grunnskólaaldri við tónlistarskólann.
Bæjarráð samþykkir að veita nemanda við Tónlistarskóla Kópavogs styrk sem nemur 50% af kostnaðarhlutfalli sveitarfélagsins fyrir skólaárið 2015-2016, samtals kr. 97.000, á grundvelli þess að námið er ekki kennt við Tónlistarskóla Akraness auk þess sem nemandi er á grunnskólaaldri myndi námið ekki falla undir samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.

Fjármununum verður ráðstafað af liðnum 20830-4995.

6.Reglur um styrkveitingar vegna umsókna um tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum.

1511189

Bæjarráð beinir þeim tilmælum til skóla- og frístundaráðs að semja drög að reglum um styrkveitingar til tónlistarnáms einstaklinga sem hafa lögheimili á Akranesi en stunda tónlistarnám í öðru sveitarfélagi.

7.Dalbraut 6 - þjónustumiðstöð fyrir aldraða

1410165

Lagt fram erindi starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 þar sem óskað er eftir fjárheimild vegna frumhönnunar húsnæðis þjónustumiðstöðvar að fjárhæð kr. 3.000.000.
Í fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir 10 mkr. í reitinn að Dalbraut 6. Innfalið í þeirri fjárhæð er m.a. hönnunarkostnaður.

8.Starfshópur um ábyrgð lífeyrisskuldbindinga ríkis og sveitarfélaga

1511120

Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um stofnun starfshóps um ábyrgð lífeyrisskuldbindinga ríkis og sveitarfélaga vegna samrekstrar og fleira. Í starfshópnum verða Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á Akranesi, Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar og Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar.
Erindið lagt fram til kynningar.

9.Knattspyrnufélag ÍA - umsögn á tækifærisleyfi vegna Carnival Rejúníjon

1511006

Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi og tímabundið áfengisleyfi vegna uppskeruhátíðar árgangamóts sem halda á þann 14. nóvember næstkomandi frá kl. 19:00-01:00.
Afgreiðsla bæjarstjóra samkvæmt 75. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar lögð fram til kynningar.

10.Afreksíþróttasvið samstarfssamningur 2015

1509378

Erindi skóla- og frístundaráðs þar sem óskað er eftir samþykki bæjarráðs við samstarfssamningi FVA, ÍA og Akraneskaupstaðar um afreksíþróttasvið við Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi fyrir skólaárið 2015-2016.
Bæjarráð samþykkir samstarfssamninginn.

11.Búnaðar- og áhaldakaup 2015 (tækjakaupasjóður) - ráðstöfun fjármuna

1411073

Umsókn Bókasafns Akraness um kaup á sjálfsafgreiðsluvél.
Bæjarráð samþykkir úthlutun fjármuna úr tækjakaupasjóði vegna kaupa á sjálfsafgreiðsluvél í Bókasafn Akraness.

Fjármununum, samtals að fjárhæð kr. 2.200.000, verður ráðstafað af liðnum 20830-4660.

12.Grundaskóli - tölvukostur og hvatatilboð

1511162

Erindi Hollvinafélags Grundaskóla um tölvukost í Grundaskóla og hvata tilboð til að gera betur.
Bæjarráð fagnar stuðningi Hollvinafélags Grundaskóla og bendir á að forsvarsmenn skólans geta sótt um fjárveitingu í miðlægan tækjakaupasjóð Akraneskaupstaðar.

13.Skátaskálinn Skorradal - endurnýjun á samningi

1404016

Erindi skóla- og frístundaráðs þar sem óskað er eftir samþykki bæjarráðs að samningi milli Akraneskaupstaðar og Skátafélags Akraness um rekstur og uppbyggingu Skátafells í Skorradal.
Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar.

14.Hvalfjarðarsveit - samstarfssamningar

1412236

Erindi skóla- og frístundaráðs um áherslur Hvalfjarðarsveitar vegna samstarfssamnings um ýmis málefni á skóla- og frístundasviði. Ráðið vísar málinu til umfjöllunar í bæjarráði.
Lagt fram til kynningar.

15.Orkuveita Reykjavíkur - arðgreiðslustefna

1511167

Erindi Orkuveitu Reykjavíkur um arðgreiðslustefnu og tillaga um tilnefningu í rýnihóp.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Jóhann Þórðarson sem fulltrúa Akraneskaupstaðar í rýnihópinn.

16.Listaverk á Breið

1511179

Erindi Elsu Maríu Guðlaugsdóttur um listaverkið Síberíu sem staðsett hefur verið á Breiðinni.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í skipulags- og umhverfisráði vegna staðsetningu listaverkanna á Breiðinni og til menningar- og safnanefndar vegna listaverkakaupanna.

17.Skipan almannavarna í umdæmi lögreglustjórans á Vesturlandi

1511181

Erindi lögreglustjórans á Vesturlandi um skipan almannavarna á Vesturlandi.
Bæjarráð tekur undir erindi lögreglustjórans og telur skynsamlega ráðstöfun að hafa eina almannavarnanefnd á Vesturlandi.

18.Jöfnunarsjóður - framlög v/ nýbúafræðslu 2016

1509131

Erindi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2016.
Lagt fram til kynningar.

19.Jöfnunarsjóður - framlög v/ sérþarfa fatlaðra nemenda 2016

1509132

Erindi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlað framlag Jöfnunarsjóðs vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fyir fjárhagsárið 2016.
Lagt fram til kynningar.

20.Jöfnunarsjóður - framlög 2016

1509141

Erindi Jöfnunarsjóðs um úthlutun tekjujöfnunarframlaga og sérstaks framlags vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 19:26.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00