Fara í efni  

Bæjarráð

3223. fundur 10. júlí 2014 kl. 16:00 - 18:00 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Inga Guðnadóttir Varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Guðný Jóna Ólafsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Guðný J. Ólafsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Deilisk. - Dalbraut-Þjóðbraut, vegna Þjóðbrautar 1

1403195

Erindi skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 25.6.2014, þar sem gerð er grein fyrir að engar athugasemdir hafi borist vegna grenndarkynningar sem send var meðeigendum í húsinu við Þjóðbraut 1.
Lagt er til við bæjarstjórn að umsóknin verði samþykkt.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir umsóknina og að breytingin verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

2.Deilisk. - Dalbraut-Þjóðbraut, Dalbraut 6

1405059

Erindi framkvæmdaráðs dags. 1.7.2014, þar sem lagt er til við bæjarráð að stofnaður verði starfshópur um deiliskipulagsverkefnið vegna Dalbrautar 6.
Lagt er til að í starfshópnum verði fulltrúar frá framkvæmdaráði, fjölskylduráði og FEBAN og að starfsmaður hópsins verði skipulags- og byggingarfulltrúi.
Bæjarstjóra falið að vinna málið frekar.

3.Deilisk.- Smiðjuvellir - Kalmansvellir 4A.

1403134

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 24.6.2014, þar sem gerð er grein fyrir umsókn um breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla vegna Kalmansvalla 4A. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Deilisk.- Breiðarsvæði, Breið 132361

1405199

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 7.7.2014, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Breiðar verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að breytingin verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Deilisk.- Breið

1407007

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 7.7.2014, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulag Breiðar, verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að deiliskipulag Breiðar verði auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.Deilisk. Skógarhverfi 2.áf., Fagrilundur 9-15.

1406121

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 7.7.2014, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að heimila umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga v/ Fagralundar 9-15.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að heimila umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga.
Vakin er athygli á því að allt óhagræði sem fylgt gæti ofangreindri breytingu þ.m.t. breyting á lögnum, skal greiðast af umsækjanda.

7.Deilisk.-Nýlendureitur, Melteigur 11-15

1406200

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 7.7.2014, þar sem gerð er grein fyrir ódagsettu erindi Magnúsar Freys Ólafssonar varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits. Nefndin tók jákvætt í erindið.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að heimila umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits.
Vakin er athygli á því að allt óhagræði sem fylgt gæti ofangreindri breytingu þ.m.t. breyting á lögnum, skal greiðast af umsækjanda.

8.Grenigrund, leiksvæði

1405128

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 24.6.2014, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að heimila íbúum við Grenigrund að reisa opið grillskýli á opnu svæði milli húsa við Grenigrund í eigu Akraneskaupstaðar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir erindið.

9.Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn - Landsþing 2014 -ályktun

1407021

Lagðar voru fram ályktanir sem samþykktar voru á 15. þingi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem haldið var 25. - 26. apríl 2014.

10.XXVIII. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1407034

Fundarboð á Landsþing Sambands Íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður á Akureyri 24. - 26. september 2014.
Bæjarráð samþykkir að Ólafur Adolfsson, Sigríður Indriðadóttir, Svanberg Eyþórsson, Ingibjörg Valdimardóttir og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, sitji landsþingið f.h. AKraneskaupstaðar.

11.Faxaflóahafnir - aðalfundur 2014

1403129

Ársskýrsla Faxaflóahafna fyrir árið 2013.
Lögð fram.

12.Írskir dagar 2014

1403019

Bæjarráð þakkar starfsmönnum, fyrirtækjum og einstaklingum sem komu að framkvæmd Írskra daga árið 2014, fyrir afar metnaðarfulla og vandaða dagskrá.

13.Fundargerðir 2014 - skipulags- og umhverfisnefnd

1401161

114. fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 1.7.2014.
Lögð fram.

14.Fundargerðir 2014 - Faxaflóahafnir sf.

1401090

122. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 27.6.2014.
Lögð fram.

15.Fundargerðir 2014 - Höfði

1401149

41. fundargerð stjórnar Höfða frá 9.7.2014.
Lögð fram.

16.Fundargerðir 2014 - stjórn OR

1403061

202. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 16.5.2014.

17.Fundargerðir 2014 - Samband ísl. sveitarfélaga

1402050

817. fundargerð Sambands ísleskra sveitarfélaga frá 27.6.2014.

18.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2014

1405176

Rekstrarniðurstaða janúar - maí 2014 og skýringar deildarstjóra bókhaldsdeildar dags. 7.7.2014.
Lagt fram.
Bæjarstjóra falið að óska eftir tillögu og áætlun frá fjölskyldusviði/ráði varðandi málaflokk fatlaðra og barnavernd.

19.Viðaukar við fjárhagsáætlanir

1406154

Erindi Innanríkisráðuneytisins dags. 18.6.2014, þar sem farið er yfir gerð viðauka við fjárhagsáætlun.
Lagt fram.

20.FVA - lóð, umhverfi og viðhald

1309201

Boð um fund frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, um lóð heimavistar FVA á Akranesi sem haldinn verður 11. ágúst nk.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.

21.Kjarasamningar almennra starfsmanna

1407032

Lagt fram bréf frá kjara- og samstarfsnefnd.
Bæjarráð samþykkir greiðslu júníuppbótar vegna starfsmanna í Verkalýðsfélagi Akraness og Starfsmannafélagi Reykjavíkur. Ennfremur samþykkt sérákvæði vegna sérstakrar orlofsuppbótar fyrir starfsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness.

22.Baugalundur 16 - umsókn um lóð til vara

1407001

Umsókn Sturlu Guðlaugssonar dags. 27.6.2014, um lóð til vara, en áður hefur hann sótt um lóð sem hefur verið úthlutað en ekki hafnar framkvæmdir á.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Sturlu Guðlaugssyni lóðina við Baugalund 16.

23.Deilisk. - Smiðjuvellir, breyting vegna lóðar nr. 3 við Smiðjuvelli

1407033

Erindi Smiðjufells ehf. dags. 7.7.2014, varðandi uppbyggingu á matshlutum 01 og 04 á lóð nr. 3 við Smiðjuvelli á Akranesi.
Greinargerð framkvæmdastjóra Umhverfis- og skipulagssviðs dags. 7.7.2014.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir erindi Smiðjufells ehf.

24.Grenigrund 7, umsókn um stækkun bílgeymslu og breytingar innbyrðis

1403115

Erindi skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 25.6.2014, þar sem gerð er grein fyrir að engar athugasemdir hafi borist vegna grenndarkynningar sem send var húseigendum í nágrenni við Grenigrund 7.
Lagt er til við bæjarstjórn að umsóknin verði samþykkt.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar, samþykkir umsóknina.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00