Fara í efni  

Bæjarráð

3068. fundur 31. mars 2010 kl. 08:00 í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Æðaroddi - lagfæring á gæðingavelli

911094

Tölvupóstur Ingu Óskar Jónsdóttur dags. 2. mars 2010




Bæjarráð samþykkir að fela forseta bæjarstjórnar að undirrita samning þar sem samþykkt verður að greiða kostnað vegna endurnýjunar Skeiðvallar Dreyra að upphæð allt að 4 milljónir króna. Fylgigögn samnings eru teikningar og verklýsing. Við samþykkt samnings af hálfu bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar er heimilt að greiða 25% kostnaðar og að lokinni úttekt Skipulags - og umhverfisstofu verði upphæðin að fullu greidd. Í samningi komi fram áætlaður verktími. Bæjarráð óskar eftir við Framkvæmdaráð að verkefnissstjóra verði falið að aðstoða hestamannafélagið við gerð útboðsgagna. Fjármögnun er vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.

2.Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum.

1003178

Fundargerð frá 25. febrúar 2010 og tölvupóstur Karenar Jónsdóttur.




Fundargerðin lögð fram. Evrópusáttmálinn um jafna stöðu kvenna og karla verður tekinn fyrir á næsta fundi.

3.Birkiskógar 3 - eigendaskipti á lóð.

1003171

Beiðni Sveinbjörns Freys Arnaldssonar og Sigurðar Sveinbjörns Gylfasonar um eigendaskipti á lóð við Birkiskóga 3.



Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar hjá Skipulags- og umhverfisstofu.

4.List - og handverksfélag Akraness og nágrennis

1002236

Bréf Stjórnar List- og handverksfélags Akraness og nágrennis mótt. 19. mars 2010.


Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

5.Tryggingargjald - endurgreiðsla á hækkuðu gjaldi

1003167

Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 19. mars 2010.




Bréfið lagt fram.


Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera athugasemd til ríkisstjórnar um að það vanti allt að 8 milljónir króna greiðslu til bæjarsjóðs til að jafna upp álögur á Akraneskaupstað af hálfu ríkisvaldsins vegna tryggingagjalds á móti kynntum bótum samkvæmt framlögðu bréfi Jöfununarsjóðs sveitarfélaga.

6.Langisandur ehf. beiðni um viðræður við bæjarráð

1003189


Bæjarráð boðar bréfritara til næsta fundar bæjarráðs.

7.Kaup á búnaði

1003193

Bréf framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu dags. 23. mars 2010.





Bæjarráð samþykkir erindi vegna Garðasels en afgreiðslu annarra erinda er frestað þar til endurskoðuð fjárhagsáætlun liggur fyrir.

8.Launamál

1003188

Bréf Birgis Þórs Guðmundssonar sálfræðings dags. 29.3.2010




Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska álits launanefndar sveitarfélaga á erindinu.

9.Advance ehf.- ráðgjöf

1003076

Bréf framkvæmdastjóra Advance ehf. dags. 8.3.2010.


Lagt fram.

10.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

902107

Bæjarstjóri lagði fram gögn frá ársfundi lánasjóðsins.

11.Starfsmaður vegna atvinnuátaks

1003197

Bréf verkefnastjóra Akranesstofu dags. 30. mars 2010.


Bæjarráð samþykkir tillögu atvinnuátaksnefndar varðandi ráðningu starfsmanns.

12.Atvinnuátaksnefnd - fundargerðir 2010.

1001149

6.,7. og 8. fundargerð atvinnuátakshóps dags. 12.,17. og 29. mars 2010.

Lagðar fram.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00