Fara í efni  

Bæjarráð

3075. fundur 24. júní 2010 kl. 16:00 í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Jón Pálmi Pálsson framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Akranesstofa - Markaðsmál

1006117

Tómas Guðmundsson verkefnastjóri Akranesstofu mætir á fundinn.

Tómas gerði grein fyrir helstu málum sem snúa að rekstri Akranesstofu og störfum sínum sem verkefnastjóra.

2.Írskir dagar 2010.

1006074

Tómas Guðmundsson verkefnastjóri Akranesstofu mætir á fundinn.

Tómas gerði grein fyrir fyrirliggjandi dagskrá Írskra daga sem haldnir verða í byrjun júlí n.k. Rætt var einnig um gæslu á tjaldsvæðum og þeim þáttum sem snúa að öryggisgæslu umræddra daga.

Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu til gæslu og þrifa í bænum á Írskum dögum að upphæð kr. 2.000.000,- og fjármögnun vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

3.Landslög - viðræður

1006123

Ívar Pálsson lögfræðingur frá Landslögum mætir til viðræðna.

Ívar gerði bæjarráði grein fyrir þeim málum sem Landslög eru nú að vinna að sem hagsmunagæsluaðili fyrir Akraneskaupstað.

4.Atvinnuátaksnefnd - fundargerðir o.fl. 2010.

1001149

Sumarvinna í atvinnuátaki Akraneskaupstaðar og Vinnumálastofnunar.

Málið rætt.

5.Jaðarsbakkalaug - viðbótaropnun

1002235

Bréf framkvæmdaráðs dags. 22. júní 2010 þar sem lagt er til að opnunartími íþróttamannvirkja verði færður í fyrra horf í samstarfi við starfsfólk. Áætlaður kostnaður er 7,6 millj. miðað við heilt ár.

Bæjarráð samþykkir tillöguna. Fjárveitingu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.

Bókun frá Einari Brandssyni:

Er sammála því að opnunartími íþróttmannvirkja verði lengdur frá því sem nú er enda hafi það verið í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar að endurskoða opnunartíma íþróttamiðstöðva.

6.Hreinsun opinna svæða.

1004093

Bréf framkvæmdaráðs dags. 22. júní 2010 þar sem lagt er til að bærinn verði hreinsaður um helgar og á sérstökum frídögum. Lagt er til að veitt verði aukafjárveiting til verkefnisins að upphæð kr. 1,1 millj.

Bæjarráð samþykkir erindið, fjárveitingu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.

7.Gatnagerðargjöld-eldri lóðir

1006081

Tillaga að gjaldskrá fyrir sérstakt gatnagerðargjald vegna framkvæmda við eldri götur á Akranesi.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

8.Framkvæmdastofa - rekstraryfirlit 2010

1002242

Rekstrarstaða 1. janúar - 30. maí 2010. Bréf Framkvæmdaráðs dags. 22. júní 2010, varðandi rekstrarstöðu og leiðréttingu fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og vísar erindinu til úrvinnslu fjármálastjóra við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir annan ársfjórðung 2010.

9.Akranesstofa - rekstraryfirlit 2010

1006124

Rekstrarstaða 1. janúar - 30. maí 2010.

Lagt fram.

10.Aðalskrifstofa - rekstraryfirlit 2010

1006125

Rekstrarstaða 1. janúar - 30. maí 2010.

Lagt fram.

11.Brú við Breið - ráðstöfun

1006122

Í upphafi síðasta kjörtímabils ákvað fyrrverandi meirihluti bæjarstjórnar að láta smíða stálbrú sem átti að nota út í gamla vitann á Breiðinni. Þessi framkvæmd var gerð án þess að fyrir lægju nauðsynlegar breytingar á skipulagi.

Bæjarráð samþykkir að hætt verði við að nýta umrædda brú á þeim stað sem fyrirhugað var, þ.e. að "gamla vitanum". Þess í stað verði brúin nýtt t.d. við kartöflugarða bæjarins, í skógræktinni við Klapparholt og yfir ýmsa skurði í bæjarlandinu.

12.Íþróttamannvirki - starfshópur

1006118

Tillaga um starfshóp um uppbyggingu íþróttamannvirkja
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að skipa starfshóp sem fái það verkefni að meta þarfir Akraneskaupstaðar og íþróttahreyfingarinnar á Akranesi um uppbyggingu íþróttamannvirkja næstu árin og setja fram tillögur um hana og samstarf þessara aðila.
Skipað verði í starfshópinn að loknum komandi bæjarstjórnarkosningum. Skal einn koma frá hverju framboði sem á fulltrúa í bæjarstjórn og jafnmargir frá Íþróttabandalagi Akraness. Bæjarráð skal útbúa erindisbréf fyrir starfshópinn sem lagt skal fyrir bæjarstjórn.
Starfshópurinn skal leggja mat á núverandi íþróttaaðstöðu í eigu Akraneskaupstaðar og aðstöðu félaga innan Íþróttabandalags Akraness, greina þarfir þeirra fyrir aðstöðu á næstu fimm árum. Starfshópurinn skal á grundvelli þeirrar niðurstöðu leggja fyrir bæjarstjórn tillögur að forgangsröðun verkefna og gróft kostnaðarmat á þeim.
Starfshópurinn skal skila niðurstöðum ekki síðar en 1. nóvember 2010.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

13.Sameiningarmál sveitarfélaga

1002194

Sveitarfélagið Vesturland - drög að sameiningu Vesturlands í eitt sveitarfélag. Skýrsla SSV dags. í júní 2010.

Lögð fram.

14.Eðlisfræði - landskeppni

1005048

Tölvupóstur Jóhannesar Snorrasonar dags. 23. júní 2010 v/Arons Öfjörð Jóhannessonar.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu, en bendir jafnframt á að Akraneskaupstaður hefur nú þegar styrkt umrætt verkefni. Fjölskylduráði falið að taka til endurskoðunar gildandi reglur um afreksstyrki.

15.Faxaflóahafnir - ársreikningur

1003015

Ársskýrsla stjórnar Faxaflóahafna sf og hafnarstjóra. (skýrslan er aðgengileg á vefsíðu Faxaflóahafna).

Upplýst var að forseti bæjarstjórnar, Sveinn Kristinsson, var fulltrúi Akraneskaupstaðar á ársfundi hafnarinnar sem haldinn var þann 23. júní s.l.

16.Aðalfundarboð OR 2010

1006112

Fundarboð OR dags. 16. júní 2010 á aðalfund Orkuveitu Reykjavíkur 25. júní 2010 kl. 15:00.

Bæjarráð samþykkir að fela framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu að fara með umboð Akraneskaupstaðar á fundinum í samræmi við 3. gr. laga nr. 139/2001 um Orkuveitu Reykjavíkur.

17.Aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.

905017

Fundarboð Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2010, sem haldinn var í Leifsbúð, Búðardal kl. 14:00 þann 23. júní 2010.

Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu gerði grein fyrir fundinum sem hann sat sem fulltrúi Akraneskaupstaðar.

18.Fundargerðir OR - 2010

1002247

126. og 127. fundargerð stjórnar OR frá 2. og 4. júní 2010.

Lögð fram til kynningar.

19.Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi - fundargerðir

1004066

Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi frá 21. júní 2010.

Lögð fram til kynningar.

20.Fundargerðir framkvæmdaráðs 2010

1006132

39. fundargerð framkvæmdaráðs frá 21. júní 2010.

Lögð fram til kynningar.

21.Fundargerðir stjórnar Akranesstofu 2010

1006135

28. fundargerð stjórnar Akranesstofu frá 28. maí 2010.

Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00