Fara í efni  

Bæjarráð

3061. fundur 21. janúar 2010 kl. 16:00 í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Guðný J. Ólafsdóttir fulltrúi deildarstjóra
Dagskrá

1.Kosningar til Alþingis - kostnaður sveitarfélaga.

1001053

Tölvupóstur frá sambandi Íslenskra sveitarfélaga dags. 15. janúar 2010, vegna kostnaðar við kosningar til Alþingis.




Bæjarráð staðfestir svar bæjarstjóra enda falli ekki kostnaður á Akraneskaupstað vegna framkvæmdar kosninga umfram greidda hlutdeild af hálfu ríkisins.

2.Framkvæmdastofa - Rekstrarstaða 2009

908018

Bréf framkvæmdastjóra Framkvæmdasatofu dags. 7. janúar 2010 um rekstrarstöðu Framkvæmdastofu 1/1 - 30/11 2009.



Bæjarráð vísar til þess að endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 var samþykkt 12. jan. s.l. og þau atriði sem um er að ræða voru felld að áætluninni.

3.Styrkbeiðni - Lagfæring á gæðingavelli á Æðarodda.

911094

Umsögn Framkvæmdastofu dags. 4.1.2010.



Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

4.Skagaver - uppgjör framkvæmda.

903119

Bréf Lex lögmannsstofu dags. 23. 12.2009 ásamt umsögn framkvæmdastjóra Skipulags- og umhverfisstofu.



Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn lögmanns Landslaga varðandi erindið og vísar að öðru leyti til fyrirliggjandi umsagnar framkvæmdastjóra Skipulags- og umhverfisstofu.

5.Könnun meðal kjósenda

1001045

Tölvupóstur frá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands dags. 14.1.2010



Lagt fram.

6.Höfði - Framlag sveitarfélaga vegna byggingarlána (langtímalána)

811153

Bréf framkvæmdastjóra Höfða dags. 2.1.2010.


Lagt fram.

7.Byggingarstig - upplýsingar

1001047

Bréf Samtaka iðnaðarins dags. 13. janúar 2010 þar sem óskað er upplýsinga um byggingarstig húsa á Akranesi.



Bæjarstjóri hefur þegar svarað erindinu samkv. framlögðum gögnum.

8.Golfklúbburinn Leynir - framkvæmdasamningur v. vélaskemmu

1001061

Bréf Golfklúbbsins Leynis dags. 14.1.2010.



Bæjarráð samþykkir að boða bréfritara til fundar.

9.Samstarfssamningur um íþrótta- og æskulýðsmál - drög að samningi milli Akraness og Borgarbyggðar.

1001024



Bæjarráð vísar erindinu/samningsdrögunum til umsagnar Framkvæmdaráðs sem hefur málefnið á sínu forræði. Bæjarráð óskar einnig umsagnar Fjölskylduráðs og aðalstjórnar IA.

10.Styrkir frá Viator ehf.

1001087

Viator ehf. ákvað að veita styrkfé ársins 2009 til samfélagsmála í heimabæjum eigenda.
Á Akranesi var ákveðið að styrkja tvær stofnanir, annars vegar Endurhæfingarmiðstöðina HVER með 150.000.- og hins vegar Fjöliðjuna á Akranesi með sömu upphæð.



Bæjarráð þakkar Viator e.h.f./ Bjarnheiði Hallsdóttur og Pétri Óskarssyni gott framlag til samfélagsmála á Akranesi.

11.Sveinbjörn Sigurðsson hf. - málefni

912071

Minnisblað Ívars Pálssonar lögfræðings dags. 22.12.2009.




Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Lagt er til að fallist sé á samninginn sem lýtur að uppgjöri vegna Hvítanesreits annarsvegar og kostnaðar vegna innaksturs að Dalbraut 32 hinsvegar á grundvelli minnisblaðs Ívars Pálssonar lögmanns Landslaga varðandi málið. Bæjarráð ítrekar að rétt hafi verið staðið að skipulagi á Hvítanesreit.

12.Akranesstofa - samstarf stofnana.

912063

Bréf Hvalfjarðarsveitar dags. 13.1.2010.

Lagt fram.

13.Byggðasafnið í Görðum - rekstur

811087

Bréf Hvalfjarðarsveitar dags. 15.1.2010, þar sem óskað er eftir aðkomu Safnaráðs vegna hugmynda Akranesstofu um samstarf stofnana.

Lagt fram.

14.Sorphirða

903109

Umsögn skipulags- og umhverfisnefndar dags. 19.1.2010.

Lagt fram.

15.Garðalundur - deiliskipulag

912025

Bréf skipulags- og umhverfisnefndar þar sem lagt er til við bæjarstjórn að auglýsa deiliskipulag Garðalundar skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Bæjarráð samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

16.Tölvubúnaður - innkaup 2010

1001069

Bréf framkvæmdastjóra Skipulags- og umhverfisstofu dags. 18.1.2010 og tölvubréf framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu dags. 18.1.2010 þar sem óskað er eftir samþykki vegna tölvukaupa.






Bæjarráð leggur til að erindunum verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.

17.Baugalundur 18 - vextir af útlögðum kostnaði vegna tafa á afhendingu

807059

Tölvubréf Guðjóns Theódórssonar vegna fyrri óska um að fá greiddan útlagðan kostnað vegna tafa á afhendingu lóðar.



Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

18.Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - rekstur íþróttavallar.

912005

Umsögn fjölskylduráðs dags. 8.1.2010 og bréf framkvæmdaráðs dags. 21.12.2010.



Fyrirliggjandi er umsögn Fjölskylduráðs og Framkvæmdaráðs. Ekki hefur borist umsögn aðalstjórnar IA.


Bæjarráð samþykkir að fela Framkvæmdaráði að taka upp viðræður við KÍA um erindið.

19.Frestir lóðarhafa til framkvæmda.

912090

Bréf framkvæmdastjóra Skipulags- og umhvefisstofu dags. 28.12.2009.






Afgreiðslu frestað.

20.Skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands, fundargerðir 2009

904099


Lagðar fram.

21.Fundargerðir Menningarráðs Vesturlands 2009.

902019


Lagðar fram.

22.OR - Heildarstefna.

1001015

Bréf Orkuveitu Rreykjavíkur dags. 31.12.2009 um heildarstefnu OR.

Lögð fram.

23.Framkvæmdastofa - aukafjárveiting 2010

1001097

Bréf framkvæmdastofu dags. 21.1.2010 um aukafjárveitingu vegna 2010.


Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar því til bæjarstjórnar og endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.

24.Tækifæri - hugmyndasetur fyrir ungt fólk

1001060

Minnisblað frá Rauða krossi Íslands Akranesdeild.



Tillaga:



Bæjarráð hefur kynnt sér tillögu sem gengur undir heitinu ?Tækifæri? en þar er tillaga að hugmyndasetri og skilgreindum verkefnum fyrir ungt atvinnulaust fólk. Bæjarráð felur verkefnisstjórn sem skilgreind er í ?Tækifæri? að vinna áfram að málinu og undirbúa umsókn til félagsmálaráðuneytis um þátttöku í föstum kostnaði.



25.Atvinnu- og fjölskyldumál

1001086

Bæjarráð samþykkir að skipa tvo fjögurra manna starfshópa vegna atvinnumála á Akranesi:

Annar hópurinn undirbýr verkefni sem nefnist fab/lab og geri hann tillögu að verkefninu og leggur fyrir bæjarráð.

Gerð er tillaga um að Eydís Aðalbjörnsdóttir verði formaður og aðrir í hópnum eru Sturlaugur Sturlaugsson, Guðmundur Valsson og Þröstur Ólafsson.

Hinn hópurinn fjalli um atvinnumál og geri tillögu til bæjarráðs um á hvern hátt Akraneskaupstaður geti komið í veg fyrir atvinnuleysi eða að það verði sem minnst, m.a. með auknum verkefnum kaupstaðarins og fyrirtækja á staðnum.

Gerð er tillaga um að Karen Jónsdóttir verði formaður starfshópsins og aðrir í hópnum eru Sturlaugur Sturlaugsson, Björn Guðmundsson og Hjördís Garðarsdóttir.

Bæjarráð óskar eftir því að Tómas Guðmundsson verkefnastjóri Akranesstofu og Guðrún Gísladóttir framkvæmdastjóri Vinnumálastofnunar Vesturlands vinni með hópnum.

26.Grunnskólar - boð OR á leiksýningu

1001119



Tillaga í bæjarráð í dag:


Bæjarráð Akraness samþykkir í framhaldi af boði Orkuveitu Reykjavíkur á leiksýninguna Bláa gullið fyrir 4. og 5. bekk grunnskólanna á Akranesi að veita kr: 200.000 vegna ferðakostnaðar.


Afgreiðslu er vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010 og samþykktar bæjarstjórnar.

27.Hvalfjarðarsveit - aðalskipulag

904138

Athugasemdir frá Leið ehf. dags. 8.12.2009 vegna aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar.






Bæjarráð telur að inn í aðalskipulagið vanti áherslu um þverun Grunnafjarðar. Í stefnumótun til framtíðar ætti að gera ráð fyrir veglínu í samræmi við ályktanir SSV og ítrekaðar umsagnir sveitarstjórna Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar um málið.



Bókun Rúnar:


Grunnafjörður er friðaður og eitt þriggja Ramsasvæða á Íslandi. Hin svæðin 2 eru Mývatn og Þjórsárver. Ramsarsáttmálinn er alþjóðlegur sáttmáli um vernd votlendis. Vegur um Grunnafjörð gæti valdið miklum náttúruspjöllum. Vegur yfir ósinn við Hvítanes er varasamur nema full vatnsskipti séu tryggð á milli sjávarfalla til að ekki hljótist skaði af.

28.Strætisvagn Akraness

908106

Athugasemdir Hjördísar Garðarsdóttur vegna innanbæjarstrætisvagns á Akranesi.

Lagt fram.

29.Hundaskóli - skilyrði

1001063

Breyting á skilyrðum til að öðlast viðurkenningu á grunnnámskeiði í hundauppeldi.

Bæjarráð samþykkir að vísa afgreiðslu til bæjarstjórnar en samþykkir tillögu um breytingar fyrir sitt leyti.

30.Hundahald - breyting á samþykkt 2010

1001064

Bæjarráð samþykkir tillögu um breytingu fyrir sitt leyti en vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

31.Hundahald - gjaldskrárbreyting 2010.

1001062


Bæjarráð samþykkir tillöguna í samræmi við samþykkt fjárhagsáætlunar og að breytingin verði auglýst í Stjórnartíðindum.

32.Baugalundur 22, umsókn um lóð.

1001025

Umsögn framkvæmdastjóra skipulags- og umhverfisstofu vegna umsóknar um lóð við Baugalund 22.


Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar og hvetur til þess að vinnu starfshóps um ,,kynningu á kostum Akraness sem byggingarsvæðis" verði hraðað.

33.Þjóðvegir við Akranes

1001046

Tölvusamskipti bæjarstjóra og Vegagerðar.


Bæjarráð ítrekar áherslu sína á nauðsyn þess að tryggja öryggi vegfarenda í samræmi við athugasemdir sem hér er fjallað um.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00