Fara í efni  

Bæjarráð

3150. fundur 12. apríl 2012 kl. 16:00 - 18:00 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Guðmundur Páll Jónsson formaður
  • Hrönn Ríkharðsdóttir varaformaður
  • Þröstur Þór Ólafsson aðalmaður
  • Einar Brandsson áheyrnarfulltrúi
  • Árni Múli Jónasson bæjarstjóri
  • Jón Pálmi Pálsson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Jón Pálmi Pálsson bæjarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2012

1109132

Tillögur til sparnaðar og hagræðingar í rekstri 2012.

Bæjarráð samþykkir tillögur ráða og stofa með áorðnum breytingum um sparnað í rekstri og er viðkomandi ráðum falið að koma þeim tillögum í framkvæmd.

Bæjarritara falið að leggja fyrir bæjarráð tillögu að umsögn á drögum á reglugerð um fjármál sveitarfélaga.

2.OR - staðfesting eigenda vegna lána

1103053

Bréf Orkuveitu Reykjavíkur dags. 10.4.2012, tillaga að bókun fyrir Akraneskaupstað og tölvupóstssamskipti frá 29.3-11.4.2012.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn eftirfarandi afgreiðslu:

"Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkir hér með að veita Orkuveitu Reykjavíkur, sem sveitarfélagið á í samvinnu við önnur sveitarfélög, einfalda hlutfallslega ábyrgð vegna EUR 6.200.000 lántöku Orkuveitunnar hjá Lánasjóði sveitarfélaga, sbr. heimild í 2. mgr. 1. gr. laga, nr. 139/2001 um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, sbr. 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum.

Lán Orkuveitu Reykjavíkur er tekið til að fjármagna fráveituverkefni á Akranesi, Borganesi og Kjalarnesi sem fellur undir lánshæf verkefni sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Heildarfjárþörf verkefnisins er 5,8 milljarðar króna. Ábyrgð eigenda Orkuveitu Reykjavíkur nemur því ekki hærra hlutfalli en 80% af fjárþörf verkefnisins.

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkir hér með einnig að veita veð í tekjum sveitarfélagsins, til tryggingar ofangreindri ábyrgð, vegna lántöku Orkuveitu Reykjavíkur hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð EUR 6.200.000 fram til nóvember 2020. Er veðsetning þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 3. gr. reglugerðar um tryggingar Lánasjóðs sveitarfélaga í tekjum sveitarfélags nr. 123/2006.

Jafnframt er Jóni Pálma Pálssyni kt. 270754-3929 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að samþykkja f.h. Akraneskaupstaðar veitingu ofangreindrar veðtryggingar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu tryggingar þessarar."

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - Aðalfundur 2012

1203219

Tilnefning í stjórn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Ólaf Adolfsson í stjórn HEV í stað Rúnar Halldórsdóttur.

4.Afskriftir 2011

1109092

Bréf fjármálastjóra dags. 11.4.2012 þar sem óskað er eftir heimild til afskrifta krafna að fjárhæð kr. 1.123.815.- Trúnaðarmál.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

5.Afskriftir 2012

1203209

Bréf sýslumannsins á Akranesi dags. 26.3.2012 þar sem óskað er eftir afskrift krafna. Trúnaðarmál.

Bæjarráð samþykkir erindið.

6.Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar - stjórnarseta

1203118

Tilnefning á varamanni í stjórn Lífeyrissjóðs AKraneskaupstaðar.

Bæjarráð samþykkir að skipa Árna Múla Jónasson sem varamann í stjórnina í stað Andrésar Ólafssonar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00