Fara í efni  

Atvinnumálanefnd (2000-2008)

129. fundur 13. apríl 2005 kl. 18:15 - 18:40

129. fundur atvinnumálanefndar var haldinn miðvikud. 13. apríl 2005 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:15.


Mættir voru: Guðni Tryggvason, formaður
 Ástríður Andrésdóttir
 Guðrún Elsa Gunnarsdóttir
 Þórður Þ. Þórðarson
 S. Pétur Svanbergsson


Auk þeirra bæjarritari, Jón Pálmi Pálsson, sem einnig ritaði fundargerð.  Einnig sátu fundinn markaðs- og atvinnufulltrúarnir þeir Björn Elísson og Tómas Guðmundsson.


Fyrir tekið:

1. Minnisblað Strætó bs. dags. 13.4.2005, varðandi samstarf um almenningssamgöngur.

Formaður og bæjarritari gerðu grein fyrir viðræðum sínum við forstjóra og aðstoðarforstjóra Strætó bs varðandi möguleika á að Akranes tengist við kerfi almenningssamgangna Reykjavíkursvæðisins.  Fyrir liggur skv. minnisblaði forstjóra Strætó bs. vilji af hálfu fyrirtækisins, að Akranes gerist aðili að byggðasamlaginu með stofnframlagi og geri tilraunasamning til ca 3ja ára um að Strætó bs sjái um akstur á milli Akraness og Mosfellsbæjar með viðkomu á Kjalarnesi.
Ferðatíðni skv. þessari hugmynd eru 81 ferð á viku, og yrði heildarkostnaður 17,4 milljónir á ári.  Farþegar myndu njóta sömu kjara og almennir farþegar sem nota strætó og eiga möguleika á sömu afsláttarkjörum sem í boði eru á hverjum tíma. 

Fyrir liggur einnig að fulltrúar Samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar hafa lýst yfir vilja sínum til að semja við Akraneskaupstað um útfærslur á sérleyfi til Akraness.

Atvinnumálanefnd telur það mikilvægt fyrir samfélagið á Akranesi að tengjast leiðarkerfi Strætó bs eins og ofangreindar hugmyndir ganga út á, og leggur til við bæjarráð að leitað verði leiða til að hægt sé að gera ofangreint að veruleika með samningum við Samgönguráðuneytið og Strætó bs, þannig að almenningssamgöngur á milli Akraness og Reykjavíkur verði teknar upp frá og með næsta hausti með nýjum og betri hætti, samfélaginu til góða.

 

2. Skaginn skorar.
Markaðs- og atvinnufulltrúar gerðu grein fyrir stöðu mála.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:40.


 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00