Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
|
1. 2611-8396 - Breyting inni: Nesflói 2, 300 Akraneskaupstaður Atli Björn Guðbjörnsson sækir um f.h eiganda um byggingarheimild til að reisa milligólf í vinnusal. Samtals 32,6 fm. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum
|
|
2. 2610-8012 - Umsókn um stöðuleyfi - Mánabraut 20 Sigríður Sif Magnúsdóttir sækir um f.h Veitna um stöðuleyfi fyrir bráðabirgðar dreifistöð á landi Akraneskaupstaðar á milli Faxabrautar og Mánabrautar 20. Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til Veitna vegna bráðabirgðar dreifistöðvar.
|





