Margir nutu almyrkvans á Akranesi
13.08.2026
Mikill fjöldi safnaðist saman við Akranesvita í gær til að verða vitni að sögulegum almyrkva og mátti sjá fólk standa meðfram sjónum alla leið að Lambhúsasundi. Við Langasand var einnig margt um manninn auk þess sem fólk safnaðist saman á Elínarhöfða.
Meðal áhorfenda voru ferðamenn víða að úr heiminum. Við tókum nokkra tali sem höfðu fylgst með almyrkvanum á Breiðinni en í þeim hópi var fólk frá Lettlandi, Danmörku, Englandi, Japan, Bandaríkjunum og Frakklandi auk Íslendinga.
Allir voru sammála um að upplifunin hefði verið mögnuð, líkt og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.





