Tilkynning frá Akraneskaupstað: Leikskólar á Akranesi opnir á morgun
		
					07.05.2015			
										
	Leikskólar á Akranesi verða opnir á morgun, föstudaginn 8. maí en áður hafði verið boðað að þeir yrðu lokaðir vegna verkfalls ræstingafólks sem starfar hjá fyrirtækinu Hreint ehf. og er í Verkalýðsfélagi Akraness sem er aðili að Starfsgreinasambandinu. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir að náðst hafi...
Lesa meira
	Innanbæjarstrætó hættur að ganga
		
					06.05.2015			
										
	Innanbæjarstrætó á Akranesi gengur hvorki  í dag né á morgun vegna verkfalls bílstjóra. Flestir bílstjóranna eru í Verkalýðsfélagi Akraness sem er aðili að starfsgreinasambandinu. Ef ekki semst fyrir 19. maí næstkomandi þá munu ferðir strætisvagnanna innanbæjar einnig falla niður 19. og 20. maí  og síðan frá 26. maí en þá hefur verið boðað til ótímabundins allsherjarverkfalls
Lesa meira
	Sumarvinna fyrir 17 ára unglinga (f.1998) hjá Vinnuskóla Akraness
		
					04.05.2015			
										
	Akraneskaupstaður og Vinnuskóli Akraness bjóða unglingum f.1998 með lögheimili á Akranesi vinnu við Vinnuskólann. Vinnan hefst í lok maí og unnið er 35 klst. á viku. Stefnt er að vinnu í 4 - 8 vikur. Það ræðst af fjölda umsækjenda hversu langur sá tími verður. 
Lesa meira
	Fab Lab smiðjan opnar fyrir almenning
		
					04.05.2015			
										
	Fab Lab smiðjan á Akranesi verður opin fyrir almenning tiltekna daga í maímánuði. Í Fab Lab smiðjunni gefst einstaklingum tækifæri til að prófa sig áfram með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.
Lesa meira
	Málum bæinn gulan
		
					03.05.2015			
										
	Í tilefni af fyrsta stórleik sumarsins í dag, þann 3. maí, þar sem ÍA mætir Stjörnunni á heimavelli hvetur Akraneskaupstaður, í samvinnu við ÍA, bæjarbúa til að taka þátt í að búa til alvöru ÍA stemningu og mála bæinn skærgulan. Íbúar eru beiðnir um að hengja gult út á snúru, gular flíkur, gul handklæði eða bara hvað sem er, 
Lesa meira
	Myndlistarsýningin Óskasteinar í Guðnýjarstofu
		
					02.05.2015			
										
	Erna Hafnes bæjarlistamaður Akraness opnaði myndlistarsýninguna Óskasteinar í Guðnýjarstofu, Safnasvæðinu á Akranesi þann 2. maí. Þetta er þriðja myndlistarsýningin en jafnframt sú stærsta sem Erna heldur sem bæjarlistamaður Akraness. Á sýningunni eru málverk eftir Ernu sem hún hefur unnið...
Lesa meira
	Verkfallsaðgerðir hjá Gámu
		
					30.04.2015			
										
	Sorpmóttökustöðin Gáma verður lokuð vegna væntanlegra verkfalla eftir hádegið í dag þann 30. apríl og síðan 6. og 7. maí (allan daginn) og dagana 19. og 20. maí náist ekki samningar. 
Lesa meira
	Útivistartími barna og unglinga
		
					29.04.2015			
										
	Foreldrar og forráðamenn eru minntir á að skv. 92. grein barnaverndarlaga (nr. 80/2002) eru útivistartímar barna og unglinga sem hér segir..
Lesa meira
	Bæjarstjórnarfundur 28. apríl n.k.
		
					24.04.2015			
										
	1213. fundur bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 28. apríl kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Lesa meira
	Opinn kynningarfundur um framkvæmda- og fjárfestingaáætlun Akraneskaupstaðar 2015
		
					24.04.2015			
										
	Skipulags- og umhverfisráð kynnir framkvæmda- og fjárfestingaáætlun Akraneskaupstaðar 2015 á opnum fundi með íbúum Akraness. Fundurinn fer fram í bæjarþingsal kaupstaðarins þann 30. apríl n.k. kl. 16.00.
Lesa meira
	
					

 
 



