Bæjarstjórn
|
1. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi Lögð er fram til umfjöllunar tillaga um uppbyggingu og rekstur sameiginlegrar skammtímadvalar fyrir börn og ungmenni með fötlun og umfangsmiklar stuðningsþarfir á Vesturlandi. Verkefnið er unnið í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar á Vesturlandi og miðar að því að tryggja jafnt aðgengi að lögbundinni þjónustu óháð búsetu. Gert er ráð fyrir að skammtímadvölin starfi í húsnæðinu að Holti í Borgarbyggð, rekin af sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri. Lagt er til að sveitarfélög á Vesturlandi stofni sjálfseignarstofnunina, en hún sjái um rekstur þjónustunnar og leigi fasteignina að Holti. Fyrir liggur ítarlegt minnisblað ásamt fylgigögnum: Drög að samþykktum fyrir skammtímadvöl Vesturlands ses. Tillaga að rekstrarmódeli og fjárhagsáætlun, þarfagreining á húsnæði Holts og drög að leigusamningi. Ráðum sveitarfélaganna er ætlað að taka afstöðu til: 1. Val á sviðsmynd: Hvort stefnt skuli að sviðsmynd 1 eða 2 við fulla opnun, eða hvort útfærslan eigi að vera með öðrum hætti. a. Verkefnastjórn leggur til að sviðsmynd 1 verði fylgt fram að áramótum og sviðsmynd 2, eða full opnun, verði langtímamarkmiðið. 2. Útfærsla tekjumódels: Val milli valkosts A (skipt eftir íbúafjölda) og valkosts B (50% fastur kostnaður eftir íbúafjölda og 50% breytilegur eftir keyptum sólarhringum), eða hvort útfærslan eigi að vera með öðrum hætti. a. Verkefnastjórn leggur til að valkosti B verði fylgt, á grundvelli jafnræðissjónarmiða barna á svæðinu. 3. Fjöldi fulltrúa í fulltrúaráði: Stofnaðilar þurfa að taka afstöðu til þess hve margir fulltrúar eigi að sitja í fulltrúaráði og hvernig tilnefningu þeirra verði háttað. a. Verkefnastjórn leggur til að einn fulltrúi, frá hverju sveitarfélagi, komi úr röðum notendaráðs. 4. Framlag stofnenda: Ákvörðun um skiptingu stofnfjár milli sveitarfélaga. a. Verkefnastjórn leggur til jafna skiptingu milli sveitarfélaga. 5. Tímasetning stofnunar opnunar: Staðfesting á að formleg skráning fari fram tímanlega fyrir áformaða opnun haustið 2026. Velferðar- og mannréttindaráð tekur undir tillögur verkefnahóps um afgreiðslu allra liða að undanskildum lið 2, er varðar útfærslu tekjumódels. Velferðar- og mannréttindaráð er mótfallið báðum þeim útfærslum sem verkefnahópur lagði fram og leggur til að farin verði tillaga C, sem gerir ekki ráð fyrir neinum fasta kostnaði af hálfu sveitarfélaganna, heldur greiði þau hærra gjald fyrir þá sólarhringa sem þau nýta í skammtímadvölinni. Áætlað gjald yrði ákvarðað í upphafi hvers árs á grundvelli rekstraráætlunar og áætlaðrar nýtingar. Velferðar- og mannréttindaráð leggur einnig til að öðrum sveitarfélögum standi til boða að kaupa pláss í úrræðinu sem sveitarfélögin á Vesturlandi sjá ekki fram á að geta nýtt. Tekjur af sölu ónýttra rýma til annarra sveitarfélaga kæmu til lækkunar á heildarkostnaði áður en innra gjald yrði endanlega gert upp. Sviðsstjóra er falið að upplýsa verkefnahópinn um afstöðu velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
|
|
2. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun Verið er að vinna að breytingum á sundlaugarbyggingu og vallarhúsi vegna áskoranna í klefamálum, vegna aukinnar aðsóknar og aðgreiningar sundlaugagesta og nemenda í skólasundi. Samhliða því er verið að skoða breytingar á anddyri sundlaugar byggingar vegna mikils fjölda gesta sem staldrar þar við, sem hefur aukist töluvert frá opnun líkamsræktarinnar og nýjum útgangi frá líkamsrækt út að sundlaugarsvæði. Breytingin á anddyrinu felst í því að opna rýmið, fjarlægja veggi og stiga, færa afgreiðsluborð og gera breytingu á salernisaðstöðu og starfsmanna aðstöðu í anddyri. Við þá vinnu spratt upp sú hugmynd að setja upp gott salerni sem hentar öllum, til samræmis við Changingplacesinternational, sem velferðar- og mannréttindaráð kynnti fyrir skipulags- og umhverfisráði á síðasta ári. Verið er að teikna breytingar á anddyrinu þar sem gert er ráð fyrir að salernið verði staðsett þar sem starfmanna aðstaða er í dag. Salernið verður aðgengilegt á opnunartíma sundlaugarbyggingar. Velferðar- og mannréttindaráð fagnar áætlunum um uppbyggingu aðgengilegrar salernisaðstöðu fyrir fatlað fólk og að Akraneskaupstaður leggi áherslu á að nýta nýjustu þekkingu í sínum nálgunum í anda Changing Places International.
|
|
3. 2604-3405 - Gott að eldast - samþætt stuðningsþjónusta og heimahjúkrun Gerð var úttekt á aðstæðum Höfða til að mæta þörfum samþættrar stuðningsþjónustu og heimahjúkrunar. Úttektin lögð fram til kynningar. Lagt fram. Málinu vísað til kynningar í bæjarráði.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





