Fara í efni  

Bæjarstjórn

1416. fundur 10. júní 2025 kl. 17:00 - 18:20 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Valgarður L. Jónsson forseti bæjarstjórnar
  • Einar Brandsson 1. varaforseti
  • Ragnar B. Sæmundsson 2. varaforseti
  • Líf Lárusdóttir aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson aðalmaður
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson aðalmaður
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir aðalmaður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir aðalmaður
  • Magni Grétarsson varamaður
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

1.Bæjarmálasamþykkt - samþykkt um stjórn og fundarsköp (stjórnskipulagsbreytingar)

2502073

Breytingar á samþykkt Akraneskaupstaðar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar (bæjarmálasamþykkt) nr. 696/2013, með síðari breytingum, var til umfjöllun á fundi bæjarstjórnar þann 3. júní 2025 og vísað til síðari umræðu.
Forseti geri að tillögu sinni að atkvæðagreiðslan verði framkvæmd þannig að breytingarnar í heild sinni verði bornar upp til samþykktar í stað þess að hver og ein breytin verði borin upp sérstaklega en alls er um að ræða 44 tillögur um breytingar.

Samþykkt 9:0

Forseti ber upp eftirfarandi tillögu um afgreiðslu málsins:

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar, þar með talið uppfærðan viðauka nr. 1 sem og nýjan viðauka nr. 2 og að breytingunum verði vísað til ráðuneytis sveitarstórnarmála til afgreiðslu og birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

2.Kosning í ráð og nefndir tímabilið 2022 - 2026

2206003

Kosningar og tilnefningar í ráð samkvæmt samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 696/2013, með síðari breytingum.

Samkvæmt samþykktinni skal kjósa til eins árs þrjá aðalmenn og þrjá til vara í bæjarráð, skóla- og frístundaráð, velferðar- og mannréttindaráð og skipulags- og umhverfisráð og í embætti forseta.
Forseti gerir tillögu um eftirfarandi skipan mála:

1.1 Bæjarstjórn
Kosning forseta til eins árs samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.
Fram kom tillaga um að Valgarður Lyngdal Jónsson (S) verði áfram forseti bæjarstjórnar.

Samþykkt 9:0

Kosning 1. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

Fram kom tillaga um að Einar Brandsson (D) verði áfram 1. varaforseti bæjarstjórnar.

Samþykkt 9:0

Kosning 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

Fram kom tillaga um að Ragnar B. Sæmundsson (B) verði áfram 2. varaforseti bæjarstjórnar.

Samþykkt 9:0

1.2 Bæjarráð
Kosning þriggja bæjarfulltrúa sem aðalmanna og þriggja varamanna til eins árs samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn, óbreytt:
Líf Lárusdóttir formaður (D)
Valgarður Lyngdal Jónsson varaformaður (S)
Ragnar B. Sæmundsson (B)

Samþykkt 9:0

Varamenn, óbreytt:
Einar Brandsson (D)
Jónína Margrét Sigmundsdóttir (S)
Sædís Alexía Sigurmundsdóttir (B)

Samþykkt 9:0

1.3 Skóla- og frístundaráð

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn, óbreytt:
Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður (S)
Liv Aase Skarstad varaformaður (B)
Þórður Guðjónsson (D)

Samþykkt 9:0

Varamenn, óbreytt:
Auðun Ingi Hrólfsson (S)
Magni Grétarsson (B)
Ragnheiður Helgadóttir (D)

Samþykkt 9:0

1.4 Velferðar- og mannréttindaráð

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn, óbreytt:
Kristinn Hallur Sveinsson formaður (S)
Einar Brandsson varaformaður (D)
Aníta Eir Einarsdóttir (B)

Samþykkt 9:0

Varamenn, óbreytt:
Sigrún Ríkharðsdóttir (S)
Ragnheiður Helgadóttir (D)
Liv Aase Skarstad (B)

Samþykkt 9:0

1.5 Skipulags- og umhverfisráð

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn, óbreytt:
Guðmundur Ingþór Guðjónsson formaður (D)
Sædís Alexía Sigurmundsdóttir varaformaður (B)
Anna Sólveig Smáradóttir (S)

Samþykkt 9:0

Varamenn, óbreytt:
Þórður Guðjónsson (D)
Ragnar B Sæmundsson (B)
Valgarður L. Jónsson (S)

Samþykkt 9:0

3.Suðurgata 126 breyting á deiliskipulag Sementsreit - Umsókn til skipulagsfulltrúa

2504041

Umsókn S126 ehf. um breytingu á deiliskipulagi Sementsreits vegna lóðar Suðurgötu 126. Sótt er um að heimilt verði að byggja við íbúðarhúsnæði á lóð skilgreint sem B-matshluti ásamt því að heimilt verði að byggja bifreiðargeymslu allt að 39 fm sem skilgreint er sem C-byggingarreitur.

Grenndarkynnt var skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir lóðarhöfum Skagabraut 21, 23, 24, og 25, Sementsbraut 15 og Jaðarsbraut 3. frá 23.04.2025 til 23.05.2025.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breytingin sem grenndarkynnt var skv. 43. gr. 2. mgr. skipulagslaga nr 123/2010, verði samþykkt og send á Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Sementsreits vegna lóðar Suðurgötu 126, sem felur í sér að heimilt verður að byggja við íbúðarhúsnæði á lóð skilgreint sem B-matshluti ásamt því að heimilt verði að byggja bifreiðageymslu allt að 39 fm. sem skilgreint er sem C-byggingarreitur, og að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

4.Bæjarráð - umboð í sumarleyfi bæjarstjórnar 2025

2505238

Samkvæmt fyrirliggjandi fundaáætlun bæjarstjórnar er gert ráð fyrir sumarleyfi bæjarstjórnar tímabilið frá lokum fundar þess 10. júní til þriðjudagsins 26. ágúst 2025.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 696/2013, með síðari breytingum, er heimilað að bæjarstjórn fari í sumarleyfi og að bæjarráð fari með valdheimildir bæjarstjórnar á sama tímabili.
Bæjarstjórn samþykkir að næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verði þriðjudaginn 26. ágúst nk. og bæjarráði falin fullnaðarafgreiðsla mála í samræmi við samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi.

Samþykkt 9:0

5.Bæjarlistamaður Akraness 2025

2505077

Menningar- og safnanefnd sendir inn tillögu um bæjarlistamann Akraneskaupstaðar 2025.

Alls bárust 47 tilnefningar frá bæjarbúum.
Forseti gerir þá tillögu að þar sem leynd hvíli yfir hver það er sem hlýtur nafnbótina, verði afgreiðslu málsins frestað þar til í lok fundar og slökkt hefur verið á útsendingu fundarins.

Samþykkt 9:0

Málinu framhaldið:

Bæjarstjórn samþykkir tilnefningu menningar- og safnanefndar um bæjarlistamann Akraness 2025.

Samþykkt 9:0.

Gert er ráð fyrir að afhending viðurkenningarinnar fari fram á hátíðarhöldunum þann 17. júní nk.

6.Fundargerðir 2025 - bæjarráð

2501002

3594. fundur bæjarráðs frá 27. maí 2025.

3595. fundur bæjarráðs frá 5. júní 2025.
Til máls tóku:
LL um fundargerð nr. 3594, dagskrárliði nr. 1, nr. 4 og nr. 7.
LL um fundargerð nr. 3595, dagskrárliði nr. 2 og nr. 3.
VLJ úr stóli forseta um fundargerð nr. 3595, dagskrárlið nr. 3.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

7.Fundargerðir 2025 - velferðar- og mannréttindaráð

2501003

247. fundur velferðar- og mannréttindaráðs frá 3. júní 2025.
Til máls tók:
KHS um dagskrárlið nr. 2.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.Fundargerðir 2025 - skóla- og frístundaráð

2501004

264.fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 4. júní 2025.
Til máls tók:
JMS um dagskrárliði nr. 3, nr. 4 og nr. 6.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

9.Fundargerðir 2025 - skipulags- og umhverfisráð

2501005

327. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 2. júní 2025

Til máls tóku:
GIG um dagskrárliði nr. 1, nr. 5 og nr. 6.
KHS um dagskrárliði nr. 5 og nr. 6.
JMS um dagskrárlið nr. 6.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

10.Fundargerðir 2025 - Faxaflóahafnir

2501024

257. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna sf. frá 23. maí 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Fundargerðir 2025 - Heilbrigðisnefnd Vesturlands og fylgiskjöl

2501025

195. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 28. maí 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Fundargerðir 2025 - Samband íslenskra sveitarfélaga tilkynningar

2501029

980. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27. maí 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Forseti þakkar bæjarfulltrúum fyrir samstarfið í vetur og óskar þeim ánægjulegs orlofs í sumar.

Fundi slitið - kl. 18:20.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00