Fara í efni  

Bæjarráð

3270. fundur 04. desember 2015 kl. 08:00 - 11:15 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.OR - eigendanefnd 2015

1503066

Fundargerð eigendafundar Orkuveitu Reykjavíkur frá 26. nóvember.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Fundargerðir 2015 - Samband ísl. sveitarfélaga

1501219

832. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20. nóvember.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Breytingar á rekstrarreikningi Eigna- og Aðalsjóðs

1502210

Lagt er til við bæjarráð að samþykkja breytingar á rekstrarreikningi Eignasjóðs til hækkunar að fjárhæð kr. 78.077.000 og samsvarandi breytingu til lækkunar á rekstrarreikningi Aðalsjóðs í A-hluta Akraneskaupstaðar.
Bæjarráð samþykkir breytingar á rekstrarreikningi Eignasjóðs til hækkunar að fjárhæð kr. 78.077.000 og samsvarandi breytingu til lækkunar á rekstrarreikningi Aðalsjóðs í A- hluta Akraneskaupstaðar.

4.Breytingar á forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016

1502210

Lagt er til við bæjarráð að samþykkja breyttar forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 vegna nýrrar þjóðhagsspár Hagsstofu Íslands um launavísitölu og verðbólgu.
Bæjarráð samþykkir breyttar forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
Heildarbreyting á rekstrarreikning A- hluta Akraneskaupstaðar leiðir til um áætlaðrar 340.000 króna hækkunar.

5.Tilfærslur á milli liða á skóla- og frístundasviði

1502210

Lagðar eru fram tillögur til samþykktar um tilfærslur á milli liða á skóla- og frístundasviði sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu rekstrarreiknings fyrir árið 2016.
Bæjarráð samþykkir tilfærslurnar.

6.Fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun 2016

1502210

Lagt er til við bæjarráð að samþykkja breytingar til hækkunar á fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun 2016 vegna malbikunar gatna, samtals kr. 18.000.000.
Bæjarráð samþykkir breytingu á fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun 2016 að fjárhæð kr. 18.000.000 til hækkunar á áætluninni.

7.Umsókn um búsetuþjónustu

1502210

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs um búsetuúrræði einstaklings.
Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir úthlutun fjármuna í fjárhagsáætlun 2016 að fjárhæð kr. 68.000.000 til kaupa á tímabundnu þjónustuúrræði frá Vinakoti.

Gert er ráð fyrir að útgjöldunum verði mætt með framlögum frá Jöfnunarsjóði sbr. 3. gr. II. hluta C í reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna fatlaðs fólks.

Bæjarráð samþykkir hækkun á rekstrarreikningi Aðalsjóðs um kr. 68.000.000 sem færðar verði sem aukning á tekjum frá Jöfnunarsjóði og samsvarandi útgjaldaaukningu í málaflokki 02 Félagsþjónusta Breytingarnar hafa ekki áhrif á niðurstöðu fjárhagsáætlunarinnar.

8.Kaup á bílum fyrir Akraneskaupstað

1502210

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs um kaup í stað rekstrarleigu á tveimur bílum til afnota fyrir starfsemi velferðar- og mannréttindasviðs s.s. Fjöliðjuna og félagsþjónustuna.
Bæjarráð samþykkir breytingu á fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun 2016 að fjárhæð kr. 6.500.000 til hækkunar á áætluninni vegna kaupa á tveimur bifreiðum.

9.Samstarf við Vinnumálastofnun Vesturlands um rekstur Skagastaði

1502210

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs um áframhaldandi samstarf við Vinnumálastofnun Vesturlands um rekstur Skagastaða.
Bæjarráð samþykkir erindið.

10.Íbúðakaup vegna sérúrræðis í búsetumálum fatlaðs fólks

1502210

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs þar sem lagt er til við bæjarráð að festa kaup á íbúð vegna sérúrræðis í búsetumálum fatlaðs fólks.
Bæjarráð samþykkir breytingu á fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun 2016 að fjárhæð kr. 23.000.000 til hækkunar á áætluninni vegna kaupa á íbúð.

11.Breytingar á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar

1502210

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs þar sem lagt er til við bæjarráð að hækka grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar.
Bæjarráð samþykkir hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar Akraneskaupstaðar um 3,2%. Gert er ráð fyrir að hækkuninni verði mætt innan liðsins 02110-5911 Fjárhagsaðstoð, en fækkun hefur orðið á þeim einstaklingum sem eru í þörf fyrir aðstoð.

12.Greiðslur til stuðningsfjölskyldna

1502210

Erindi velferðar- og mannréttindaráðs um greiðslur til stuðningsfjölskyldna.
Bæjarráð samþykkir erindið en kostnaðaraukanum, að fjárhæð kr. 1.100.000 verði mætt með hagræðingu innan sviðsins.

13.Jafnlaunaúttekt á árinu 2016

1502210

Óskað er eftir fjárheimild vegna jafnlaunaúttektar hjá Akraneskaupstað á fjárhagsárinu 2016. Úttektin er hluti af jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að undirbúin verði gerð jafnlaunaúttektar hjá Akraneskaupstað árið 2016.
Gerð verði verðkönnun sem lögð verði fyrir bæjarráð.

14.Sorphirðugjöld 2015

1504040

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 26. nóvember 2015 um kæru á álagningu sorphirðu- og eyðingargjalda hjá Akraneskaupstað fyrir árin 2014 og 2015.
Lagt fram.

15.Búnaðar- og áhaldakaup 2015 (tækjakaupasjóður) - ráðstöfun fjármuna

1411073

Umsókn Grundaskóla um kaup á tölvum og spjaldtölvum.
Bæjarráð samþykkir úthlutun til Grundaskóla að fjárhæð kr. 1.000.000 til kaupa á tölvum og spjaldtölvum.

Fjárhæðinni verði ráðstafað af liðnum 20830-4660.

16.Gjaldskrá sorphirðu á Akranesi

1502210

Ákvörðun um álagningu sorpgjalda fyrir árið 2016.
Bæjarráð samþykkir hækkun gjaldskrár fyrir hirðu og eyðingu sorps í Akraneskaupstað fyrir árið 2016 um 1,5 % samanborið við árið 2015.

Sorphreinsunargjald vegna íbúðarhúsnæðis verði kr. 16.336 (var kr. 16.095 árið 2015) fyrir hverja íbúð miðað við tvær sorptunnur (ein fyrir almennt sorp og önnur fyrir flokkað sorp) og sorpeyðingargjald verði kr. 13.931 (var kr. 13.725 árið 2015) miðað við tvær tunnur (ein fyrir almennt sorp og önnur fyrir flokkað sorp) . Gjöldin verði innheimt með fasteignagjöldum.

Ákvörðunin hefur áhrif á rekstrarreikning samstæðu Akraneskaupstaðar um kr. 2.889.000 til hækkunar á rekstrarafgangi.

17.Starf forstöðumanns menningar- og safnamála

1510029

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri kynnir stöðu á ráðningarferli forstöðumanns menningar- og safnamála.
Málið kynnt.

18.Bíóhöllin - samningur

1512011

Fyrir liggur til samþykktar í bæjarráði viljayfirlýsing milli Akraneskaupstaðar og Vina Hallarinnar um framlengingu samnings um rekstur Bíóhallarinnar á Akranesi til 1. desember 2016.
Ingibjörg Pálmadóttir víkur af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og felur bæjarstjóra frágang málsins með undirritun sinni.

Fundi slitið - kl. 11:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00