Frá fjalli til fjöru - Gönguhátíð á Akranesi
Nú höldum við gönguhátíð á Akranesi.
Við leggjum af stað kl. 9 um morgun frá Akranesvita, göngum upp að Akrafjalli, uppá fjall og förum Akrafjallshringinn, þaðan er stefnan tekin að Hesthúsahverfinu og Elínarhöfða og ströndin þrædd um Kalmansvík, Kampinn, Krókalón, Breiðina og endum við Akranesvita.
Heildargangan eru um 30 km. Fyrirkomulagið verður þannig að þau ykkar sem hafið áhuga á að taka þátt í að ganga alla leiðina eða Akrafjallshringinn þurfa að skrá sig fyrirfram og er þátttökugjaldi stillt í hóf eða 6000 kr og innifalið í því drykkjarstöðvar, orkustykki og vandað eyrnaband sem verður einkenni hátíðarinnar.
Láglendisleiðin verður fyrir þau sem vilja ekki labba á Akrafjall en ganga allt annað. Það er í heildina 15 km en sú ganga mun hefjast við vitan kl. 14:00 og sameinast Hálendishópnum við Akrafjall. Láglendisleiðin kostar 5000 kr.
Einnig verður hægt að koma inn í gönguna á ákveðnum stöðum, og ganga með að hluta í upphafi og lok göngunnar (á síðustu og fyrstu ca. 3 km) allt eftir getu og löngun fólks og er ekki gert ráð fyrir kostnaði ef fólk er að koma með Spöl en hægt er að greiða framlag upp á 2000 kr til að styrkja viðburðinn.
Hér er ekki um keppni að ræða, ekki um hlaup að ræða heldur rólega göngu þar sem áherslan er á útivist og samveru. Við munum auglýsa fyrirkomulagið betur fram að hátíðinni. Það verður takmarkaður fjöldi sem mun geta farið með alla leið sem helgast af takmörkuðu plássi í Akrafjallshringnum. Fararstjórar verða með alla leið og er um vant útivistarfólk að ræða.
Til að kanna áhuga fólks þá megið þið endilega dreifa þessum viðburði eins og vindurinn og endilega láta vita hvort þið hafið áhuga á þátttöku.
Skráning hefst 8. mars á midiX.is. Allur ágóði af viðburðinum mun fara í styrki til félagsstarfs á Akranesi.






