Vökudagar 2026
Umfang hátíðarinnar hefur aukist ár frá ári og hefur hún notið vaxandi vinsælda meðal bæjarbúa; reyndar hefur hróður hennar borist langt út fyrir bæjarmörkin enda sækir fólk úr nágrannasveitarfélögum og jafnvel víðar að þessa skemmtilegu hátíð. Dagskrá hennar og viðburðir hafa sömuleiðis orðið viðameiri með hverju árinu og einnig hefur þátttaka fyrirtækja og stofnana aukist jafnt og þétt. Þannig hafa Vökudagar öðlast sinn fasta sess í bæjarlífinu.
Á Vökudögum fer fram fjöldi metnaðarfullra viðburða, listasmiðjur, tónlistarhátíðir, einka- og samsýningar og margt fleira.
Hér má finna dagskrá hátíðarinnar árið 2026 á glænýrri vefsíðu:
Vefsíða Vökudaga - Dagskrá og helstu upplýsingar
Hér getið þið skoðað skemmtilegar svipmyndir frá fyrr árum:
Myndasafn AkraneskaupstaðarVilt þú vera með:
- Ert þú með hugmynd að sýningu, tónleikum, fyrirlestri, smiðju, opnu húsi eða öðrum viðburði?
- Áttu rými sem gæti hentað fyrir listviðburð eða menningarstarfsemi?
- Vill fyrirtæki, félag eða stofnun taka þátt í að skapa líf og stemningu í bænum?





