Þrettándabrenna Akraneskaupstaðar 2026
Fjölskylda og félagsstarf
Hvenær
6. janúar kl. 17:30-18:20
Hvar
Þyrlupallur við Jaðarsbakka
Þrettándabrennan verður haldin þriðjudaginn 6. janúar við þyrlupallinn á Jaðarsbökkum.
Blysför á vegum Þorpsins hefst klukkann 17:30, gengið verður frá Þorpinu, Þjóðbraut 13. Búast má við Grýlu, Leppalúða, jólasveinum, tröllum, álfum og öðrum kynjaverum sem sameinast og kveðja hátíðirnar með okkur.
Björgunarfélag Akraness sér um brennuna að venju og glæsilega flugeldasýningu sem hefst klukkan 18:00. Hægt verður að fylgjast með sýningunni meðfram strandlengjunni alveg frá Breið, inn að Höfða (að undanskildu svæðinu þar sem sýningunni er skotið upp) og víðar um bæinn. En við hvetjum öll til þess að sameinast í brekkunni við þyrlupallinn. 🎆
Varðandi lokanir vegna viðburðarins:
Ef til breytinga kemur verður slíkt tilkynnt og uppfært á www.akranes.is 🌟





