Þorrablót Skagamanna 2026
Viðburður
Hvenær
7. febrúar kl. 18:00
Verð
15990
Þorrablót Skagamanna er á næsta leiti – og þetta verður stórkostlegt! 🎉
Tryggið ykkur miða ekki seinna en strax, því þetta er kvöldið sem enginn vill missa af.
Dagskráin er framúrskarandi! Herra Hnetusmjör, Friðrik Dór, Úlfur Úlfur, Ingi Bauer og Mugison stíga á svið. Veislustjórar kvöldsins eru engir aðrir en Sveppi og Gói!
Það verður frábær stemning, glæsileg umgjörð, góðir gestir, Skagaskaupið á sínum stað og – auðvitað – Skagamaður ársins!
Hópar geta haft samband við okkur á skagablotid@gmail.com og gengið frá borðapöntunum, hvetjum ykkur til að hópa ykkur saman og skrá ykkur sem fyrst.
Allur ágóði af Þorrablóti Skagamanna rennur beint til styrktar íþróttastarfs á Akranesi og góðgerðamála.
Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest!





