Fara í efni  

Sumarnámskeið - Geislaskurður

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu möguleika geislaskera og hvernig má nota mismunandi eiginleika hans til að búa til hina ýmsu hluti úr timbri, plexígleri, og öðrum efnivið. Nemendur munu öðlast grunn færni í tvívíddarteikningu og nýta hana í hin ýmsu verkefni.

Búið er að opna fyrir skráningu á sumarnámskeið Fab Lab Smiðju Vesturlands. Takmarkað pláss er í boði á hvort námskeið og geta hámark 10 skráð sig á námskeið. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á netfangið fablabvesturlands@gmail.com

Nemendur munu læra á forrit sem notuð eru í tölvuteikningum og hvernig hægt er að nýta tækin til að búa til nánast hvað sem huginum dettur í hug. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 10 - 13 ára og eru alls 4 virkir dagar að lengd. Veittur er 20% systkina afsláttur.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu möguleika geislaskera og hvernig má nota mismunandi eiginleika hans til að búa til hina ýmsu hluti úr timbri, plexígleri, og öðrum efnivið. Nemendur munu öðlast grunn færni í tvívíddarteikningu og nýta hana í hin ýmsu verkefni.


4 daga námskeið, kennt 4 klukkustundir í senn, verð: 19.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Jens Davíð Robertsson

Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt hafa samband á fablabvesturlands@gmail.com eða í gegnum samfélagsmiðla okkar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu