Fara í efni  

Langar þig að skrifa glæpasögu?

Í tilefni þess að ég er bæjarlistamaður Akraness langar mig að bjóða upp á kvöldstund þar sem ég fer yfir helstu atriðin í glæpasagnaskrifum, hvernig best sé að skipuleggja skrifin, ferlinu við að gefa út bók og margt, margt fleira. Ef þú hefur gengið með glæpasögu í maganum er tilvalið að mæta og fá innsýn í glæpasagnaskrif og allt sem því fylgir.
 
 
Skráning á netfangið evabjorg9@gmail.com eða í skilaboðum hér á Facebook. Takmarkað pláss í boði.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu