Fara í efni  

Sjómannadagurinn á Akranesi

Dagskrá sjómannadagsins á Akranesi

Kl. 10:00
Minningarstund við minnismerki um týnda sjómenn í kirkjugarði.

Kl. 10:00-18:00  
Frítt í Akranesvita. Lífið Zoe, málverkasýning Péturs Bergmann Bertol prýðir veggi vitans á annari hæð. 

Kl. 11:00
Sjómannadagsmessa í Akraneskirkju. Blómsveigur lagður að minnismerki sjómanna á Akratorgi að lokinni athöfn.

Kl. 11:00 - AFLÝST
Dýfingakeppni á vegum Sjóbaðsfélags Akraness. Keppt í tveimur flokkum, -50 ára og +51 árs. Frjáls aðferð. Keppni sést frá Langasandi.

Kl. 13:00
Akranesviti. Sýningin „Saga vitanna á Akranesi“ verður opnuð á fyrstu hæð vitans. Allir velkomnir!

Kl. 13:00-14:00
Dorgveiðikeppni á Sementsbryggjunni í boði Bíóhallarinnar.

Kl. 13:30-16:30
Kaffisala í Jónsbúð við Akursbraut á vegum Slysavarnadeildarinnar Lífar. Allir hjartanlega velkomnir.

Kl. 14:00-16:00
Fjölskylduskemmtun á hafnarsvæðinu í samstarfi við Akraneskaupstað, Verkalýðsfélag Akraness, HB Granda, Faxaflóahafnir, Runólf Hallfreðsson ehf., Björgunarfélag Akraness, Ísfisk ehf. og Fiskmarkað Snæfellsbæjar. Á boðstólnum verða m.a.: Róðrarkeppni Gamla Kaupfélagsins, hoppukastali, bátasmíði, kassaklifur, furðufiskar og ýmislegt fleira. Von er á þyrlu Landhelgisgæslunnar í heimsókn ef aðstæður leyfa og félagar í Sjósportfélaginu Sigurfara verða sýnilegir á svæðinu og verða meðal annars með kajaka á floti sem hægt verður að reyna sig á. Þá verður ýmislegt matartengt til sölu.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00