Fara í efni  

Sinfó á Akranesi / Kvöldtónleikar

Akraneskaupstaður tekur fagnandi á móti Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt kórum á Vesturlandi þann 15. maí næstkomandi.
Spilaðir verða tvennir tónleikar yfir daginn. Barnatónleikar og kvöldtónleikar.
 
,,Sinfóníuhljómsveit Íslands er það mikið kappsmál að allir landsmenn fái notið tónleika hennar. Stefnumót sveitarinnar við áheyrendur víða um landið eru ævinlega skemmtileg og gefandi. Vorið 2025 heimsótti hljómsveitin nokkra þéttbýlisstaði á Suðurlandi en nú er ferðinni heitið upp á Akranes. Þar njótum við
enn einu sinni afraksturs blómlegs tónlistarstarfs um allt land og bjóðum upp á sannkallaða söngveislu með kórum og einsöngvurum af Vesturlandi." 
 
Um tónsprotann heldur Hjörtur Páll Eggertsson en einsöngvarar eru þau Benedikt Kristjánsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Björg Þórhallsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Kristín Sveinsdóttir. Kórarnir sem koma fram með hljómsveitinni eru Freyjukórinn, Kvennasveitin Skaði, Karlakórinn Söngbræður, Karlakórinn Heiðbjört, Karlakórinn Svanir, Kvennakórinn Ymur, Gleðigjafar, Hljómur og Kór Akraneskirkju.
 
Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.
 
Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson
 
Einsöngvarar
Björg Þórhallsdóttir
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir
Kristín Sveinsdóttir
Benedikt Kristjánsson
 
Kórar
Freyjukórinn
Kvennasveitin Skaði
Karlakórinn Söngbræður
Karlakórinn Heiðbjört
Karlakórinn Svanir
Kvennakórinn Ymur
Gleðigjafar
Hljómur
Kór Akraneskirkju
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu