Samskipti minnihlutahópa og lögreglu
Viðburður
Hvenær
16. apríl kl. 09:00-10:10
Hvar
TEAMS
Verð
Frítt
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig vaxandi neikvæð samfélagsumræða um minnihlutahópa getur haft áhrif á viðhorf, traust og samskipti milli lögreglu og minnihlutahópa.
Í síðasta morgunkaffi annarinnar verður fjallað um samband lögreglu og minnihlutahópa, sem hefur lengi verið mikilvægt rannsóknarefni. Rannsóknir sýna að minnihlutahópar, til dæmis innflytjendur, verða oftar fyrir afskiptum lögreglu, bera almennt minna traust til hennar og leita síður til hennar eftir aðstoð. Traust er þó lykilforsenda þess að borgarar veiti lögreglu upplýsingar og samstarf, sem er grundvöllur árangurs í löggæsl





