Fara í efni  

Quarashi í Bíóhöllinni - Ykkur er boðið!

🔥 QUARASHI í Bíóhöllinni - Ykkur er boðið! 🔥

👉 Föstudaginn 11. september kl. 19:00 - Frítt inn!

Quarashi þakkar Bíóhöllinni og Skagamönnum fyrir sig með því að stíga á svið og taka nokkur vel valin lög.

Húsið opnar kl. 18:40, ekkert aldurstakmark.

„Við erum búnir að vera í æfingabúðum í nokkrar vikur í þessari mögnuðu Bíóhöll og okkur langar að endurgjalda þá miklu velvild sem okkur hefur verið sýnd hér á Akranesi. Þess vegna ætlum við að skella okkur á sviðið og taka nokkur vel valin lög fyrir Skagamenn og aðra gesti.
Hlökkum til að sjá ykkur – og við lofum alvöru showi!“

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu