Fara í efni  

Myndlistarsýning á Bókasafninu

Myndlistasýningin FLÓTTI er sjötta einkasýning Láru Magnúsdóttir Listakonu. Þið eruð öll velkomin á myndlistasýningu þar sem hugarró og áreiti mætast í skapandi flæði.
Á sýningunni „Flótti“ má sjá punkta verk unnin með akrýlpenna og málningu. Verkin endurspegla innra ferðalag — þörfina fyrir að draga sig í hlé frá áreiti nútímans og finna skjól í sköpuninni.
Flóttinn birtist hér sem tvíþætt upplifun: annars vegar sem leit að ró og kyrrð í gegnum myndlistina, og hins vegar sem úrvinnsla á því áreiti sem við upplifum daglega. Í verkunum umbreytist þetta ástand í lit, form og mynstur, þar sem hugurinn fær að hvílast á meðan tilfinningarnar fá að flæða frjálsar.
Hlakka til að sjá ykkur sem flest á bókasafninu:
 
Hvenær er opnun?
15.maí kl 16:00
 
Syningin stendur yfir frá og með 15.apríl og alveg til 10. maí.
 
Sáumst ❤
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu