Myndlistarnámskeið hjá Baska

Baski kemur til Íslands í ágúst og setur stefnuna að halda 5 kvöldmyndlistarnámskeið. Námskeiðin verða haldin mánudaginn 11. ágúst til föstudagsins 15. ágúst, frá klukkan 19:00 til 21.30. Námskeiðið verður haldið í FVA Vogabraut 5 Akranesi - Gengið inn vinstra megin ( Málm og Rafiðnaðardeild) og tröppur upp.
Sem fyrr verða á staðnum grunn gögn: Pappír, vatnslitapappír og eitthvað af litum og vatnslitum, blýantar, strokleður, blek penslar.
Eins og fyrr verður heitt kaffi á könnunni, aðrir drykkir og eitthvað af bruðelsi - fín tónlist í bakgrunni og góða skapið.
Í námskeiðinu kennir Baski tækni um meðferð lita, uppbyggingu og ýmislegt fleira. Penna teikningu Vatnslita, Olíu og Akryl.
Ef það er áhugi skráið ykkur á tölvupóstfangið: baskicursus@gmail.com
þar verða veittar frekari upplýsingar.