Kynningarfundur: Framkvæmdaleyfi jarðhitaleitar á Akranesi
Viðburður
Hvenær
11. mars kl. 17:00-19:00
Hvar
Grundaskóli
Boðað er til kynningarfundar um umsókn Veitna um framkvæmdaleyfi vegna borunar á rannsóknarholu á Akranesi.
Viltu hafa áhrif á þróun Akraness?
Boðað er til kynningarfundar um umsókn Veitna um framkvæmdaleyfi vegna borunar á rannsóknarholu á Akranesi. Fyrirhugað framkvæmdasvæði er við enda Jaðarsbrautar, vestan við fótboltavöll Akraness.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 11. mars, kl. 17:00, í Grundaskóla á Akranesi.
Markmið verkefnisins er að bora rannsóknarholu á um 800–1.200 metra dýpi til að kanna hvort nýtanleg jarðhitaauðlind sé til staðar á Akranesi. Slík auðlind gæti styrkt Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og mætt aukinni eftirspurn eftir heitu vatni í stækkandi samfélagi.
Á fundinum verður farið yfir framkvæmdina, framkvæmdasvæðið og fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir vegna hávaða og umhverfisáhrifa. Gert er ráð fyrir að borun fari fram vorið 2026 og taki um 6–10 vikur.
Málið var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs 6. febrúar 2026 og var ákveðið að halda sameiginlegan kynningarfund með Veitum.
Að lokinni kynningu gefst fundargestum kostur á að kynna sér málið nánar, spyrja spurninga og koma á framfæri ábendingum.
Öll eru velkomin.





