Fara í efni  

Jesús Kristur Súpergoð

Kór Akraneskirkju og Kór Keflavíkurkirkju flytja í sameiningu rokksöngleikinn Jesús Kristur Súpergoð

Kór Akraneskirkju og Kór Keflavíkurkirkju flytja í sameiningu rokksöngleikinn Jesús Kristur Súpergoð – valin lög úr þessum heimsfræga söngleik í útsetningu Arnórs Vilbergssonar og íslenskri þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Upprunalega verkið er eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice.

Tónleikarnir fara fram í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 18. apríl og hefjast kl. 17:00. Á sviði verður hátt í 100 manna kór, ásamt fjölda einsöngvara úr röðum kóranna og hljómsveitinni Postulunum.

Stjórnendur eru Arnór Vilbergsson, organisti í Keflavíkurkirkju, og Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Akraneskirkju. Í hlutverkum Jesú og Júdasar syngja Eyþór Ingi og Stebbi Jak.

Flestir þekkja Jesús Kristur Súpergoð, sem segir frá síðustu dögum Jesú – að stórum hluta séð frá sjónarhorni Júdasar.

📍 Hvar: Bíóhöllin á Akranesi
🗓 Hvenær: 18. apríl
🕗 Hefst kl.: 17:00

Jesús Kristur Súpergoð í flutningi Kórs Akraneskirkju og Kórs Keflavíkurkirkju ásamt Eyþóri Inga og Stebba Jak.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu