Fara í efni  

Íþróttasöguganga

ÍA er 80 ára í ár og af því tilefni bjóða ÍA og Akraneskaupstaður bæjarbúum að slást í för með okkar stórkostlegu Kellingum miðvikudaginn 30. september, þegar þær leiða sérstaka íþróttasögugöngu um Akranes.
Flestir Skagamenn þekkja sögugöngur Kellinganna sem hafa slegið rækilega í gegn undanfarin ár, með sínum einstaka hætti til að blása lífi í söguna. Og þessi ganga verður engin undantekning.
 
Gangan tekur um 1,5 klukkustund og hentar því flestum. Þar sameinast hreyfing, samfélag og fróðleikur á besta mögulega hátt. Á leiðinni verður farið um söguslóðir íþróttalífsins á Skaganum og rifjuð upp saga afrekafólks, sjálfboðaliða, frumkvöðla og þeirra mannvirkja sem lögðu grunn að þeirri öflugu íþróttamenningu sem Akranes er þekkt fyrir.

Síðast þegar Kellingarnar buðu upp á íþróttasögugöngu, vakti hún mikla athygli og minnti þátttakendur á hversu stór þáttur íþróttirnar hafa verið í sögu bæjarins og sjálfsmynd Skagamanna.

Komdu með í ferðalag um fortíðina, hittu góða félaga og upplifðu söguna á nýjum augum.

Við komum saman við gamla iðnskólann við Skólabraut, þar sem ganga hefst kl. 17:00 og endum hana á íþróttasvæðinu á Jaðarsbökkum í kaffi og kleinum.

Saga - Hreyfing - Samvera. Skaginn eins og hann gerist bestur. 💛🖤
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu