Írskir dagar open - Pílumót
Viðburður
Hvenær
2.- 4. júlí
Hvar
Keilusalurinn Akranesi, Vesturgata 130
Verð
3.000 - 6.000 kr
WDF-mót er mót sem telur til stiga á heimslista Alþjóða pílusambandsins (WDF) Það er pílumót þar sem einstaklingur þarf ekki að vera skráður í félag, opið mót þar sem allir (18 ára og eldri) keppa skipt í opinn flokk og kvennaflokk. Þannig að hvort sem þú vilt bara prófa eða ert þaulreynd(ur) ertu velkomin(n).
Fimmtudag – Tvímenningur (aldurstakmark 18 ára og eldri).
Föstudagur – Einmenningur – undir 18 mót skipt í drengja og stúlkna flokka.
Laugardag – Einmenningur – skipt í opin flokk og kvenna flokk (WDF mót) (aldurstakmark 18 ára og eldri).
Mótið er keyrt í DartConnect – það er einfalt kerfi þar sem skrifari setur inn skor, kerfið býður upp á að það sé plúsað og margfaldað.
Ef þú ert ný(r) að skrifa leik, þá er best að láta keppendurna vita í upphafi. Keppendur eiga ekki að taka pílu úr spjaldinu áður en skrifari hefur skráð stiginn.
Mótið er styrkt af PingPong.is, Bull´s og SF smiðum.





