Helgasund
Þá styttist í Helgasundið. Synt verður sem fyrr á laugardeginum á Írskum Dögum sem er í ár 4. júlí. Sundið hefst kl. 11:00 stundvíslega.
Mæting í Jaðarsbakkalaug þar getur fólk sameinast í bíla til að komast niður á hafnarsvæðið. Það er mikið að gerast á hafnarsvæðinu á Írskum Dögum skoðið þess vegna kortið vel til að sjá hvar hægt er að leggja bílum og ganga að flotbryggjunni.
Í ár verður eins og í fyrra synt frá flotbryggju að Guðlaug sem er heit laug við Langasand. Vegalengdin er ca. 1050 metrar.
Þessi breyting var gerð vegna þess að stundum stendur þannig á sjó að það getur verið erfitt að fara frá Sementsbryggjunni, þetta lengir sundið því lítillega.
Bátar munu að venju fylgja sundfólkinu til að tryggja öryggi sundgarpanna.
Eftir sundið er boðið uppá veitingar og hægt að ylja sér í Guðlaug. Það verður frítt fyrir þátttakendur í Guðlaug.
Við minnum þátttakendur á að vera vel nærða og helst að vera með sundhettu í skærum lit!
Þrátt fyrir að hafa verið heppin með veður biðjum við þau sem ætla að taka þátt að fylgjast með á þessari síðu ef tvísýnt verður með veður. Þetta er skemmtisund og verður ekki synt nema vel viðri!
Skráning á Facebook síðu Sjóbaðsfélags Akranes.





