Fara í efni  

Hádegistónar á Breið

Menningarfélagið Bohéme kynnir í samstarfi við Breið Nýsköpunarsetur fyrstu hádegistónleikana í hádegistónleikaröðinni Hádegistónar á Breið. Það er hún Halla Jónsdóttir söngkona sem ætlar að koma fram á fyrstu tónleikunum okkar. Halla er fædd og uppalin á Akranesi þar sem tónlist var í miklu aðalhlutverki bæði innan og utan heimilis. Á tónleikunum mun Halla flytja nokkur falleg lög sem eru henni kær. Lögin eru sérstaklega valin eftir tónlistaruppeldi hennar á Akranesi sem er fjölbreytt og má því búast við því sama í lagavalinu. Halla er að gefa út sína fyrst plötu í haust og ætar hún að nota tækifærið og frumflytja tvo lög af nýrri plötu á þessum tónleikum. Sérstakur gestur verður Heiðmar Eyjólfsson. Það verður gaman að taka á móti ykkur í hádegisstund á breið með Höllu og Eyjólfi. 🥰🥰 Tónleikarnir fara fram: fimmtudaginn 9.apríl. kl 12:05 og verður þeim lokið kl 12:35 Þeir fara fram á annari hæð Breið Nýsköpunarsetur (áður HB & Co) Aðgangur Ókeypis. Tilvalið að skella sér í hádegishléinu sínu og njóta tónlistar. 🎶🎶 Þetta verkefni er unnið í samstarfi Menningarfélagsins Bohéme og Breið Nýsköpunarsetur og er styrkt af SSV og Akraneskaupstað.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu