Gull á Grunnsævi - Þörungaráðstefna
Viðburður
Hvenær
3. september kl. 15:00-17:30
Hvar
Breið Þróunarfélag, Bárugata 8-10, 2. hæð
Breið þróunarfélag, í samstarfi við Þörungakjarnann, stendur að Þörungaráðstefnunni „Gull á grunnsævi - tækifæri stórþörunga á Íslandi“, sem haldin verður í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi þann 3. september 2026.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að þeim fjölbreyttu tækifærum sem felast í rannsóknum, ræktun, vinnslu og nýtingu stórþörunga á Íslandi.
Á dagskrá verða fjölbreytt og áhugaverð erindi frá fyrirtækjum, vísindafólki og öðrum sérfræðingum sem starfa á sviði þörunga á Íslandi. Einnig verða kynningarbásar þar sem gestir geta kynnt sér verkefni, rannsóknir og nýsköpun á þessu ört vaxandi sviði.
Þátttakendur eru:
- Samtök þörungafélaga
- Hyndla
- Hafrannsóknarstofnun
- ISEA
- Alberte Holmö Bojesen
- Röst sjávarrannsóknarsetur
- Matís
- Lava Seaweed
- Fine Foods Islandica
- Marvakt
- Íslensk hollusta
- Marimedx
- Íslandsþari
- Marvakt
- Sedna bioapack
- Og fleiri
- Hyndla
- Hafrannsóknarstofnun
- ISEA
- Alberte Holmö Bojesen
- Röst sjávarrannsóknarsetur
- Matís
- Lava Seaweed
- Fine Foods Islandica
- Marvakt
- Íslensk hollusta
- Marimedx
- Íslandsþari
- Marvakt
- Sedna bioapack
- Og fleiri
Takið daginn frá, öll hjartanlega velkomin!





