Fara í efni  

Eftir á að hyggja - Katrín María Káradóttir

Katrín María Káradóttir er prófessor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, fatahönnuður,
klæðskeri og rannsakandi, með mikinn metnað fyrir handverki.
Eftir á að hyggja er uppgjör og endurlit til þátttöku í alþjóðlega rannsóknarverkefninu FISHSkin, sem
fjallaði um þróun sjávarleðurs sem umhverfisvæns valkostar fyrir tískuiðnað. Á sýningunni eru
prufur og flíkur unnar úr jurtalituðu sjávarleðri ásamt innsýn í rannsóknar- og hönnunarferlið að baki
þeim.


Að elta skinnið ofan í hafið
Fær sjávarleður í fangið. Hvað á að gera við þetta? Hmmm... leyfir því að fljóta og byrjar að elta það.
Eltir það ofan í hafið, finnur þarann, hittir fiskana, finnur samfélag kvenna í hafinu til að synda með í
gegnum lífið. Lærir að elska hafið. Eltir sjávarleðrið svo inn í fortíðina og hittir þar handverksfólk víða
að úr heiminum. Eltir það til Japan og hittir þar annað samfélag kvenna sem stinga sér ofan í hafið,
kunna að anda eins og fiskar, sækja þar fjársjóði. Lærir að fríkafa, verða frjáls í hafinu og lífinu. Lærir
að dvelja í natni, taka tíma, leyfa náttúrulegum ferlum að ráða ferðinni. Sér hvað gerist þegar sjórinn
mætir skóginum, jörðinni, himninum. Smátt og smátt sest hafið að í líkamanum. Lærir að skynja
meira og hlusta betur á hafið í líkamanum, náttúruna í sjálfinu, í ferlinu.
Hafið, handverkið, sagan, ferlið allt frá því Katrín María fékk sjávarleðrið í hendurnar, sjáum við
líkamnast í verkum hennar. Við finnum fyrir hafinu, fyrir samfélögum kvenna sem synda sterkar
saman í straumnum, frjálsar, í friði með fjársjóðunum sem þær sækja í náttúruna. Við finnum styrk
þeirra, heyrum þær rabba saman yfir handverkinu, heyrum í hafinu, heyrum hljóðin í hafinu taka á
móti þeim þegar þær stinga sér til sunds, finnum lyktina af þaranum, finnum hreyfingar fiskanna
synda í straumnum. — Guðbjörg R. Jóhannesdóttir


Opnun
Laugardaginn 3. október kl. 15:00
Beitan
Breiðargata 2b, Akranesi


Sýningartímabil
3. - 11. október 2026
Opið alla dagana frá 14 - 17


Sýningarstjóri: Sigmundur Páll Freysteinsson

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu