Bubbi í Bíóhöllinni

Tónleikar og sýningar
Hvenær
19. desember kl. 20:00-21:30
Hvar
Bíóhöllin
Verð
9500
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra.
Tónleikarnir í ár eru merkilegir fyrir þær sakir að tónleikaröðin fagnar 40 ára afmæli. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikanna hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mætir með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.
Til hamingju, Bubbi Morthens, með þessi merku tímamót og kæru gestir, eigið gott kvöld.