Bókaútgáfusmiðja - Barnó
Fjölskylda og félagsstarf
Hvenær
11. nóvember kl. 16:00-18:00
Hvar
Bókasafn Akraness
Markmið smiðjunnar er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á því hvað felst í bókaútgáfu frá a til ö.
Framkvæmd smiðjunnar verður með hvetjandi, skapandi og vinalegum hætti.
Hefur þú áhuga á bókum? Finnst þér gaman að skrifa sögur? Hefurðu velt því fyrir þér hvernig bókakápur verða til?
Finnst þér áhugavert að sjá tómt blað verða að einhverju áþreifanlegu?
Teiknarðu?
Ertu með auga fyrir smáatriðum eða ertu meira að spá í stóru myndinni?
Í bókaútgáfusmiðjunni fer Marta yfir allskonar fróðleik um bókaútgáfu og leggur fyrir nokkur verkefni.
Markmið smiðjunnar er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á því hvað felst í bókaútgáfu frá a til ö.
Framkvæmd smiðjunnar verður með hvetjandi, skapandi og vinalegum hætti.
Smiðjan hentar öllum krökkum á grunnskólaaldri sem hafa áhuga á sköpun.
***Barnamenningarhátíð Vesturlands - Barnó - best, mest, vest!***
11. nóvember kl 16:00 á Bókasafni Akraness





