Auglýsum eftir Tónlistarfólki á Vesturlandi til að taka þátt í hádegistónleikaröð.
Viðburður
Hvenær
21. febrúar - 16. október
Hvar
Breið Nýsköpunarsetur
Menningarfélagið Bohème auglýsir í samstarfi við Breið Þróunnarfélag hádegistónar á Breið 2026
Auglýst er eftir tónlistarfólki af Vesturlandi til að taka þátt í hádegistónleikaröðinni Hádegistónar á Breið árið 2026. Tónleikarnir fara fram fyrsta föstudag í mánuði í: apríl, maí, september og október. Markmið tónleikaraðarinnar er að búa til notalega og lifandi hádegisstund í skapandi umhverfi Breið Nýsköpunarseturs.
Áhugasamt tónlistarfólk er hvatt til að senda tölvupóst á hannathora@simnet.is fyrir frekari upplýsingar. Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, söngkona, verkefna- og viðburðarstjóri.





