Fara í efni  

Skipulagslýsing vegna breytinga á aðal- og deiliskipulagi Ægisbrautar vegna Vallholts 5

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt skipulagslýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 skv. 30. gr. og breytingu á deiliskipulagi Ægisbrautar skv.  40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í gildandi aðalskipulagi kemur fram að fjölbýlishús á þessari lóð gæti þjónað nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og að byggja megi fjöleignarhús á tveimur hæðum og að nýtingarhlutfall megi vera 1.0. Aðalskipulagsbreyting felst í því að fjölbýlishúsið verði til almennra nota og að nýtingarhlutfall verði lækkað úr 1.0 í 0.75. Breyting á deiliskipulagi felst í að skilgreina byggingarreit fyrir fjöleignarhús, fjölda íbúða og fyrirkomulag bílastæða.

Ábendingar varðandi tillögugerðina skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa fyrir 22. apríl næstkomandi á netfangið skipulag@akranes.is.

Lýsinguna má skoða hér


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00