Fara í efni  

Sjáðu Brekkubæjarskóla eftir breytingar

Óhætt er að segja að mikil ánægja hafi verið með þær breytingar sem orðið hafa á Brekkubæjarskóla á undanförnum árum, en skólinn hefur nánast verið endurhannaður frá grunni. Nýverið var haldið opið hús í bæði skólanum og íþróttahúsinu við Vesturgötu, en þar hafa einnig verið töluverðar framkvæmdir að undanförnu.

"Það er búið að stórbæta hér aðstöðu unglinganna okkar, við erum komin með bætta aðstöðu í list- og verkgreinum, glæsilega nýja stoðþjónustu,  tónmenntastofu, fleiri kennslurými, nýtt bókasafn og aðstöðu fyrir starfsfólk. Við starfsfólk, nemendur og hagaðilar skólans erum afskaplega hamingjusöm með þessa framkvæmd. Hún hefur reynt helling á, en við erum glöð í dag og fögnum þessum áfanga verulega," sagði Elsa Lára Arnardóttir skólastjóri Brekkubæjarskóla á opna húsinu.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá svipmyndir úr íþróttahúsinu og skólanum eftir breytingar auk þess sem rætt er við starfsfólk og sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs bæjarins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu