Rafræn sundkort í Jaðarsbakkalaug
29.07.2026
Í gær voru rafræn sundkort tekin í notkun í Jaðarsbakkalaug, nýjung sem hefur ýmsa kosti í för með sér fyrir bæði sundgesti og starfsfólk. Nú verður til að mynda óþarfi fyrir korthafa að vera með kort á sér þar sem sundgestir skrá kennitölu í afgreiðslulausnina og skrá sig þannig í sund.
Eigendur sundkorta (bæði árskorta og klippikorta) eru hvattir til að koma við í afgreiðslu sundlaugarinnar í sinni næstu heimsókn og skila eldri kortum inn. Starfsfólk hefur þegar forskráð þá sem eru með virk kort og nota Abler.
Athugið að gestir í World Class sem ætla í sund láta áfram vita í afgeiðslunni og þurfa að sýna staðfestingu á áskrift.
Búast má við því að einhverjir hnökrar verði á skráningu næstu daga og gestir eru beðnir að sýna því skilning, en vonir standa til að það muni ganga bæði fljótt og vel að taka nýtt kerfi í notkun.
Velkomin í sund! 






