Opinn kynningarfundur um skipulagsmál á Sementsreit
		
					20.10.2015			
															Skipulagsmál
							
	Opinn kynningarfundur um skipulagsmál á Sementsreit verður haldinn þann 22. október næstkomandi í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness að Dalbraut 1. Fundurinn hefst kl. 17.30 og er dagskrá eftirfarandi:
- Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri setur fundinn.
 - Ávarp Rakelar Óskarsdóttur formanns starfshóps um Sementsreit
 - Kynning Kanon arkitekta
 - Kynning Ask arkitekta
 - Kynning Landmótunar
 
Að lokinni dagskrá verður fundargestum boðin léttur kvöldverður sem og einnig þátttaka í starfshópum til að ræða tillögur sem fram komu á fundinum. Fundarstjóri er Sigríður Indriðadóttir.
					




 
 



