Gáma lokuð í morgun
11.12.2025
Almennt - tilkynningar
Uppfært: Vind hefur lægt og stöðin verður opnuð kl. 13.30.
---
Mjög hvasst er í móttökustöð Gámu við Höfðasel þennan morguninn og samkvæmt veðurspá á að bæta í vind.
Af þeim sökum verður lokað á svæðinu þar til vind lægir. Samkvæmt spám á veðrið að ganga niður eftir hádegi og verður staðan endurmetin þá.
Við biðjum íbúa að fylgjast með tilkynningum áður en þeir gera sér ferð.





