Auglýst starf forstöðumanns menningar- og safnamála
		
					16.10.2015			
										
	Akraneskaupstaður auglýsir eftir öflugum leiðtoga í nýtt starf forstöðumanns menningar- og safnamála á Akranesi. Við erum fyrst og fremst að leita eftir kraftmiklum einstaklingi sem hefur mikinn metnað og hefur sýnt árangur í starfi. 
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Fagleg forysta í menningar- og safnamálum
 - Yfirstjórn stofnana sem tilheyra málaflokknum
 - Markaðs- og kynningarstarf menningar- og safnamála
 - Yfirumsjón með gerð starfs- og fjárhagsáætlunar
 - Yfirumsjón með viðburðum og hátíðarhöldum
 - Undirbúningur funda menningar- og safnanefndar og eftirfylgni
 
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg
 - Stjórnunarreynsla, þ.m.t. reynsla af stefnumótun og breytingastjórnun
 - Mikil samskipta- og samstarfshæfni
 - Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
 - Góð þekking og reynsla af fjárhagsáætlunargerð
 
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsóknarfrestur til 9. nóvember 2015 og skal sótt um starfið á heimasíðu Hagvangs.
Upplýsingar um starfið veitir Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is
					

 
 



