Laust starf aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóra í leikskólanum Akraseli
		
					23.10.2015			
										
	Aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri óskast til starfa í leikskólann Akrasel. Um er að ræða tímabundið 100% starf frá 1. desember 2015 - 31. ágúst 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og kennarasambands Íslands.
Akrasel er grænfánaleikskóli sem leggur áherslu á umhverfismennt, útikennslu, jóga, hollt mataræði og snemmtæka íhlutun í málörvun. Kjörorð leikskólans er: NÁTTURA – NÆRING –NÆRVERA.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfs.
 - Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
 - Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans.
 - Bera ábyrgð á utanumhaldi sérkennslu, samskipti við sérfræðiþjónustu, prófanir og þjálfun.
 - Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
 - Vera faglegur leiðtogi.
 - Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum.
 
Menntun og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskólakennari.
 - Leikskólasérkennaramenntun og reynsla af stjórnun er æskileg.
 - Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða.
 - Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
 - Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
 - Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf.
 - Góð tölvu- og íslenskukunnátta.
 
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti eða í síma 433-1260.
					

 
 



